fbpx
Sunnudagur 14.desember 2025
433

Klopp: Henderson fékk erfiðasta starfið á Englandi

Hörður Snævar Jónsson
Mánudaginn 5. mars 2018 20:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Jurgen Klopp stjóri Liverpool segir að Jordan Henderson fyrirliði Liverpool hafi fengið erfiðasta starfið í enskum fótbolta.

Klopp hefur mikla trú á Henderson en margir stuðningsmenn Liverpool telja hann veikan hlekk.

Klopp segir að Henderson hafi fengið það hlutverk að fylla skarð Steven Gerrard, það er ekki fyrir alla

,,Jordan veit hvað mér finnst um hann og hvað Gareth Southgate finnst um hann. Það er ástæða fyrir því að hann er fyrirliði okkar, getur hann bætt sig? Já, hann er enn ungur,“ sagði Klopp.

,,Hann er frábær leikmaður, það hefur aldrei verið efi í mínum huga. Hann fékk erfiðasta starfið í fótboltanum á Englandi. Hann varð að fylla skarð Steven Gerrard.“

,,Það er ekki gott starf að fá, vonandi hugsar fólk ekki lengur um það. Hann er magnaður leikmaður.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Benzema boðar óvænta endurkomu

Benzema boðar óvænta endurkomu
433Sport
Í gær

Stefán skefur ekki af því – „Held að það sé ekki hægt að finna mikið auðvirðilegri persónu“

Stefán skefur ekki af því – „Held að það sé ekki hægt að finna mikið auðvirðilegri persónu“
433Sport
Fyrir 2 dögum

Albert uppljóstrar um nöfn stórliða sem drógu sig úr viðræðum við hann eftir að kærumálið kom upp

Albert uppljóstrar um nöfn stórliða sem drógu sig úr viðræðum við hann eftir að kærumálið kom upp
433Sport
Fyrir 2 dögum

Salah snýr aftur

Salah snýr aftur