fbpx
Laugardagur 07.júní 2025
Fréttir

Setti inn íslenska þætti á Deildu og vill fá tölvuna sína aftur

Þáttunum var samtals deilt yfir 90 þúsund sinnum

Kristín Clausen
Fimmtudaginn 9. júní 2016 12:10

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hæstiréttur hafnaði í gær kröfu manns um að fá tvær tölvur, flakkara, USB lykla og farsíma til baka en tækin hafa verið í vörslu lögreglunnar frá því í lok mars árið 2014.

Maðurinn liggur undir grun um að hafa afritað íslensku sjónvarpsþættina Sönn íslensk sakamál og deilt þeim með notendum síðunnar Deildu.net. Upplýsingar um hvaða þátt um ræðir hafa verið fjarlægðar úr dómi Hæstaréttar og úrskurði héraðsdóms Reykjavíkur sem birtist hér.

Þáttunum var samtals deilt yfir 90 þúsund sinnum sem síðar varð til þess að framleiðslu þeirra var hætt.

Rannsókn málsins hófst þann 24. febrúar 2014, skömmu síðar var ákærði handtekinn á heimili sínu og eftir húsleit var hald lagt á umrædd tæki. Eftir að kærða var sleppt úr haldi, sama dag, var hann yfirheyrður í þrígang vegna málsins.

Þann 18. maí síðastliðinn fékk hann að vita að rannsókn málsins væri lokið og málið komið í ákærumeðferð. Af þeirri ástæðu og að meira en tvö ár eru síðan munirnir voru haldlagðir krafðist maðurinn þess að fá tækin aftur.

Hæstiréttur hafnaði kröfunni á þeim forsendum að rannsókn málsins sé lokið og ákæra verði væntanlega gefin út á næstum dögum. Viðbúið er að krafist verði í ákæru, upptöku á tölvubúnaðinum, en að öðrum kosti mun varnaraðili væntanlega afhenda sóknaraðila búnaðinn.

Hugsanlegt er einnig, úr því sem komið er, að búnaðurinn verði nýttur við sönnunarfærslu undir rekstri málsins. Sú ályktun verður óhjákvæmilega dregin að krafa sóknaraðila um afléttingu á haldi hafi orðið til þess að ákveðið var að ljúka rannsókn málsins.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Rekinn úr starfi hjá ríkinu vegna lélegrar frammistöðu – Fór í mál en fær ekki krónu í bætur

Rekinn úr starfi hjá ríkinu vegna lélegrar frammistöðu – Fór í mál en fær ekki krónu í bætur
Fréttir
Í gær

Sigmar boðar breytingar: „Minn­ing­in um lok­un­ina síðasta sum­ar er enn í fersku minni“

Sigmar boðar breytingar: „Minn­ing­in um lok­un­ina síðasta sum­ar er enn í fersku minni“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Jón tekur upp hanskann fyrir múslimana á Keflavíkurflugvelli – „Sé ekki að þessir karlangar hafi brotið neitt af sér“

Jón tekur upp hanskann fyrir múslimana á Keflavíkurflugvelli – „Sé ekki að þessir karlangar hafi brotið neitt af sér“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Húsfélagið í vanda vegna þess að einn „nískupúki“ stöðvar allt – „Hann mætir á enga húsfundi og vill aldrei staðfesta neinar framkvæmdir“

Húsfélagið í vanda vegna þess að einn „nískupúki“ stöðvar allt – „Hann mætir á enga húsfundi og vill aldrei staðfesta neinar framkvæmdir“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Hinn grunaði í máli Madeleine segist ætla að láta sig hverfa í haust

Hinn grunaði í máli Madeleine segist ætla að láta sig hverfa í haust
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Flaug til Íslands með stútfullt kælibox af mat – „Þetta sparaði okkur stórfé“

Flaug til Íslands með stútfullt kælibox af mat – „Þetta sparaði okkur stórfé“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Íbúar að verða trylltir á dularfullu „djöflablístri“ við Hallgerðargötu – „Búið að halda fyrir mér vöku síðustu tvær nætur“

Íbúar að verða trylltir á dularfullu „djöflablístri“ við Hallgerðargötu – „Búið að halda fyrir mér vöku síðustu tvær nætur“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Netverjar keppast við að hringja í númerið sem sendi Semu Erlu þessi viðbjóðslegu skilaboð

Netverjar keppast við að hringja í númerið sem sendi Semu Erlu þessi viðbjóðslegu skilaboð