
Þetta kemur fram í umfjöllun danska miðilsins Samvirke sem segir að með því að nota handklæðið tíu sinnum áður en það er sett í þvott sé verið að teygja ansi vel á þrifunum.
Samkvæmt niðurstöðum könnunar sem Coop Analyse gerði á síðasta ári, þá eru Danir ekki mjög samstíga í skoðun sinni á hversu oft þarf að þvo handklæði. Til dæmis sögðust 22% aðspurðra kvenna og 13% aðspurðra karla nota sama handklæðið einu sinni eða tvisvar áður en það fer í þvott.
34% karla og 22% kvenna sögðust nota handklæði sjö til tíu sinnum áður en það fer í þvott.
Samkvæmt því sem American Cleaning Institute og ensku neytendasamtökin Which? Segja, þá er í lagi að nota handklæði í eina viku áður en það er sett í þvott.
En til þess að það sé í lagi, þá þarf að uppfylla eftirfarandi skilyrði:
Að þú sért hraust(ur).
Að bara þú notir handklæðið.
Að þú gætir þess að það þorni alltaf eftir notkun.
Handklæði, sem fólk þurrkar hendurnar með, á að skipta um tvisvar eða þrisvar í viku. Handklæði, sem þú notar til að þurrka andlitið, á að fara í þvott eftir tvö skipti.