
Í ævisögu sinni „View From the East Wing: A memoir“ skýrir Jill Biden, eiginkona Joe Biden, frá undarlegri ökuferð með Melania Trump, eiginkonu Donald Trump.
Bild skýrir frá þessu og segir að umrædd ökuferð hafi verið farin 20. janúar 2025, daginn sem Donald Trump var settur í embætti forseta öðru sinni.
Samkvæmt hefðinni þá tóku fráfarandi forsetahjón, Joe og Jill Biden, á móti verðandi forseta og eiginkonu hans, Donald og Melania Trump, í Hvíta húsinu og buðu upp á te.
Joe Biden og Donald Trump óku saman í bíl til þinghússins en Jill Biden og Melania Trump í öðrum bíl.
Jill segir að andrúmsloftið í bílnum hafi verið ískalt.
Eins og kunnugt er neitaði Trump að viðurkenna kosningasigur Joe Biden fjórum árum áður og hafði ítrekað sagt hann vera veikburða og óhæfan til að gegna forsetaembættinu.
Kosningabaráttan var hörð fyrir síðari kosningarnar og hafði haft áhrif á eiginkonur þeirra.
„Þetta er eitt af fáum skiptum sem Melania og ég höfum hist,“ segir Jill í upphafi lýsingarinnar á ökuferðinni og bætir við að í hún hafi litið á Melania sem „ókunnuga“.
John Bessler, sem á sæti í nefndinni sem sér um innsetningu nýs forseta, var einnig með í bílnum. „Veslings John varð að finna leið til að draga úr spennunni,“ skrifar Jill.
Hún segir að hann hafi spurt Melania hvaða háskóla Barron Trump, sonur hennar og Donald, væri í. Svarið var stutt: „NYU“ (New York háskóli, innsk. blaðamanns).
Jill segir að því næst hafi Bessler spurt Melania hvort þau hjónin ættu hund. Svarið var: „Nei.“
Í þriðju tilrauninni til að koma samræðum af stað spurði hann Melania hvernig faðir hennar, Viktor, hefði það en eiginkona hans lést ekki löngu fyrir þetta.
„Hún sagði að hann hefði það gott og bætti síðan við: „En þú skilur, það er bara eitt ár síðan.““