fbpx
Mánudagur 08.júní 2026
Fréttir

Pútín segir að aðeins tveir möguleikar séu í stöðunni í Úkraínu

Ritstjórn DV
Föstudaginn 5. júní 2026 09:30

Hvorugur möguleikinn er góður fyrir Úkraínu.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Vladimír Pútín Rússlandsforseti segir að stríðinu í Úkraínu geti annaðhvort lokið með friðarsamkomulagi á grundvelli tillagna Donalds Trump Bandaríkjaforseta eða með sigri Rússa á vígvellinum.

Þetta kom fram í máli Pútíns á fundi með fulltrúum erlendra fjölmiðla í tengslum við árlega efnahagsráðstefnu í Rússlandi í gær. Reuters greinir frá.

Á fundinum sagði Pútín að yfirvöld í Moskvu væru tilbúin að semja um frið en að úkraínsk stjórnvöld yrðu að samþykkja þær málamiðlanir sem ræddar hefðu verið á fundi hans með Trump í Anchorage í Alaska á síðasta ári.

„Úkraínumenn verða að samþykkja þessar málamiðlanir. Þá mun átökunum ljúka fljótt með eðlilegum hætti,“ sagði Pútín.

Hann sagðist hins vegar ekki sjá nein merki um að stjórnvöld í Kænugarði væru tilbúin til þess og lagði áherslu á að rússneski herinn myndi halda áfram sókn sinni ef samkomulag næðist ekki.

Pútín ítrekaði jafnframt kröfur Rússa um að Úkraína afsali sér þeim hlutum Donbas-svæðisins sem enn eru undir stjórn úkraínskra yfirvalda. Volodímír Selenskí Úkraínuforseti hefur hafnað þeirri kröfu og sagt hana jafngilda uppgjöf.

Pútín sagði enn fremur að staða Rússa á vígvellinum væri að styrkjast og fullyrti að Rússar hefðu nú náð fullum yfirráðum yfir Lúhansk-héraði og meira en 85 prósentum Donetsk-héraðs. Hann sagði einnig að Rússland byggi yfir hergögnum sem Úkraína hefði ekki aðgang að og að tíminn ynni með Rússum í stríðinu.

Að sögn Pútíns er Rússland því reiðubúið að binda enda á stríðið með samningum, en ef ekki náist samkomulag muni það leitast við að ná markmiðum sínum með hervaldi.

Stríðið í Úkraínu hefur nú staðið yfir í rúm fjögur ár.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Krefst svara um hvort mannréttindi séu brotin í almannatryggingakerfinu

Krefst svara um hvort mannréttindi séu brotin í almannatryggingakerfinu
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Málverkum stolið af sýningu í Bolholti um hábjartan dag

Málverkum stolið af sýningu í Bolholti um hábjartan dag
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Réttarhöld framundan í Edition-málinu – Sökuð um að hafa brugðið snöru um háls dóttur sinnar og stungið hana í hjartað

Réttarhöld framundan í Edition-málinu – Sökuð um að hafa brugðið snöru um háls dóttur sinnar og stungið hana í hjartað
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Davíð segir aðeins tímaspursmál þangað til annað ungmenni láti lífið: „Við þurfum að vakna og það núna“

Davíð segir aðeins tímaspursmál þangað til annað ungmenni láti lífið: „Við þurfum að vakna og það núna“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ósáttur við heilbrigðiseftirlitið, lögregluna og sýslumann – Hafi eyðilagt viðburð

Ósáttur við heilbrigðiseftirlitið, lögregluna og sýslumann – Hafi eyðilagt viðburð
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Gagnrýnir gagnrýni Snorra – „Gerið betur en gervigreind kæra stjórnarandstaða. Lygarnar eru allar ykkar megin“

Gagnrýnir gagnrýni Snorra – „Gerið betur en gervigreind kæra stjórnarandstaða. Lygarnar eru allar ykkar megin“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Sætti sig ekki við að missa ökuskírteinið – Afleiðingarnar voru skelfilegar

Sætti sig ekki við að missa ökuskírteinið – Afleiðingarnar voru skelfilegar