
Luis Enrique, stjóri Paris Saint-Germain, telur að meiðsli Ousmane Dembele séu ekki alvarleg þrátt fyrir að hann hafi farið meiddur af velli í 2-1 tapi gegn Paris FC í gær.
Dembele fór af velli strax á 27. mínútu eftir að hafa fundið fyrir óþægindum og skapaði það miklar áhyggjur hjá PSG aðeins tæpum tveimur vikum fyrir úrslitaleik Meistaradeildarinnar gegn Arsenal.
Enrique reyndi þó að róa stuðningsmenn eftir leik.
„Ég held að þetta sé bara þreyta. Ég held ekki að þetta sé neitt alvarlegt og það eru enn tvær vikur í úrslitaleikinn,“ sagði hann.
Dembele er lykilmaður hjá PSG og á tímabilinu hefur hann skorað 19 mörk og lagt upp 11 í öllum keppnum.