
Tyrell Malacia yfirgefur Manchester United formlega á næstu dögum eftir erfiða dvöl á Old Trafford.
Hollenski bakvörðurinn hefur átt afar erfitt uppdráttar vegna meiðsla og lék hann aðeins 49 leiki fyrir United eftir komuna frá Feyenoord 2022.
Hann náði aldrei að festa sig almennilega í sessi hjá félaginu. Hann var einnig lánaður til PSV á seinni hluta síðustu leiktíðar en náði ekki að endurvekja feril sinn þar.
Malacia hefur komið við sögu sem varamaður í tveimur leikjum United á tímabilinu. Báðir voru í ensku úrvalsdeildinni.
Samningur kappans rennur út á næstu vikum og má hann fara frítt og finna sér annað félag í sumar.