fbpx
Þriðjudagur 19.maí 2026
433Sport

Ræðir í fyrsta sinn málið eftir hrottalega hnífaárás – „Ég hélt að ég myndi ekki sjá fjölskyldu mína aftur“

Hörður Snævar Jónsson
Þriðjudaginn 19. maí 2026 09:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Jonathan Gjoshe, leikmaður sem nýverið var á mála hjá Scunthorpe United, hefur sagt frá skelfilegri reynslu sinni eftir hnífaárás í Englandi sem nærri batt enda á feril hans.

Gjoshe, sem er 23 ára gamall, var einn þeirra leikmanna sem félagið ákvað að halda ekki eftir tímabilið. Ákvörðunin vakti athygli, sérstaklega í ljósi þess sem hann hefur gengið í gegnum undanfarna mánuði.

Hann var meðal fyrstu fórnarlamba í hnífaárás á lest á leið til London í nóvember 2025 og hlaut alls sjö stungusár. Í viðtali lýsti hann því hvernig hann reyndi að vara aðra farþega við.

„Ég var stunginn fyrst í öxlina. Ég hljóp í gegnum vagninn og öskraði á fólk að hlaupa,“ sagði hann.

„Ég hélt að ég myndi ekki sjá fjölskyldu mína aftur.“

Eftir að hafa fengið fyrstu hjálp á staðnum var hann fluttur á sjúkrahús þar sem kom í ljós hversu alvarleg meiðslin voru. Þrátt fyrir það hefur hann náð fullum líkamlegum bata.

Meiðslin höfðu þó áhrif á feril hans hjá Scunthorpe og hann fékk ekki framlengingu á samningi sínum. „Ég vonaðist til að fá annað tækifæri, en það gerðist ekki,“ sagði hann.

Stuðningsmenn félagsins söfnuðu fé fyrir hann í gegnum GoFundMe og segir hann þann stuðning hafa skipt miklu máli.

Gjoshe hefur ekki farið í lest síðan árásin átti sér stað en segir sig tilbúinn fyrir næsta skref í ferlinum.

„Þetta gerðist, svona er lífið. Ég er bara þakklátur fyrir að vera á lífi,“ sagði hann.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Nýtt útlit á unnustu Ronaldo vekur mikla athygli – Brúðkaupið fer fram í sumar

Nýtt útlit á unnustu Ronaldo vekur mikla athygli – Brúðkaupið fer fram í sumar
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Óttast að ekkert geti bjargað þeim úr þessu

Óttast að ekkert geti bjargað þeim úr þessu
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Yfirgefur United eftir fjögur erfið ár

Yfirgefur United eftir fjögur erfið ár
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Rooney baunar á Salah og hvetur Slot til að hafa hann utan hóps

Rooney baunar á Salah og hvetur Slot til að hafa hann utan hóps
433Sport
Í gær

Magnús Haukur tætir Jóhannes og Davíð Þór í sig og lætur þungar fullyrðingar falla – „Þetta er bara kjaftæði og þessi yfirlýsing er til skammar“

Magnús Haukur tætir Jóhannes og Davíð Þór í sig og lætur þungar fullyrðingar falla – „Þetta er bara kjaftæði og þessi yfirlýsing er til skammar“
433Sport
Í gær

Furðuleg uppákoma í Brasilíu og Neymar trylltist – Myndband

Furðuleg uppákoma í Brasilíu og Neymar trylltist – Myndband