
Nottingham Forest ku verða sífellt bjartsýnna á að halda Morgan Gibbs-White hjá félaginu í sumar þrátt fyrir áhuga frá Manchester United og Tottenham.
Gibbs-White skrifaði undir nýjan samning við Forest árið 2025 sem gildir til ársins 2028 og styrkir það stöðu félagsins í mögulegum viðræðum.
Miðjumaðurinn hefur verið lykilmaður hjá Forest undanfarin tímabil og skoraði meðal annars í 3-2 tapi gegn United á Old Trafford um helgina.
United og Tottenham hafa bæði fylgst lengi með enska landsliðsmanninum, sem hefur skorað 14 mörk á tímabilinu þrátt fyrir erfitt gengi Forest.
Tottenham reyndi áður að fá Gibbs-White til félagsins en hann hafnaði þeim og samdi í staðinn áfram við Forest.