

Benjamin Sesko verður að öllum líkindum ekki með Manchester United í lokaleik tímabilsins gegn Brighton um helgina vegna meiðsla.
Slóvenski framherjinn hefur verið að glíma við sköflungsmeiðsli undanfarna mánuði og meiddist aftur í 3-2 sigri United gegn Liverpool þann 3. maí. Sesko fékk þá högg eftir samstuð við Ibrahima Konaté þegar varnarmaður Liverpool ýtti honum út af vellinum á Old Trafford.
United hefur ákveðið að gefa framherjanum lengri tíma til að jafna sig og hann hefur ekki æft með liðinu síðan meiðslin versnuðu. Sesko missti af leikjunum gegn Sunderland og Nottingham Forest og er nú einnig talinn frá fyrir síðustu umferðina gegn Brighton.
Hinn 23 ára gamli framherji verður ekki í landsliðsverkefnum í sumar þar sem Slóvenía komst ekki á Heimsmeistaramótið. Búist er við að næsti leikur hans verði því fyrsti æfingaleikur Manchester United í sumar gegn Wrexham í Helsinki þann 18. júlí.
Michael Carrick gæti nýtt tækifærið gegn Brighton til að gefa ungum leikmönnum meira hlutverk. Shea Lacey, Jack Fletcher og Tyler Fletcher hafa allir verið í hóp undanfarið.