
Ousmane Dembele varð fyrir meiðslum í leik Paris Saint-Germain og Paris FC í lokaumferð frönsku deildarinnar um helgina.
Franski landsliðsmaðurinn fór af velli strax á 28. mínútu eftir að hafa fundið fyrir óþægindum og er þátttaka hans í úrslitaleik Meistaradeildarinnar gegn Arsenal sögð í óvissu.
Samkvæmt blaðamanninu Fabrice Hawkins var skiptingin fyrst og fremst gerð til að taka ekki neinar áhættur, en fylgst verður grannt með ástandi Dembele næstu daga.
Dembele hefur verið einn besti leikmaður PSG á tímabilinu og er með 19 mörk og 11 stoðsendingar í öllum keppnum.
Úrslitaleikur Arsenal og PSG fer fram þann 30. maí í Búdapest.