

Helgi Fannar og Hörður Snævar fóru yfir það helsta í Íþróttavikunni á 433.is.
Arnar Gunnlaugsson landsliðsþjálfari valdi tvo landsliðshópa á dögunum, annan fyrir leik gegn Japan og hinn Argentínu.
Tíu leikmenn eru í báðum hópum en ungstirnið og nýliðinn Viktor Bjarki Daðason, sem hefur slegið í gegn með FCK, er aðeins í þeim fyrri.
„Ég hefði alveg viljað máta Viktor Bjarka við hópinn allan tímann. Ég sé ekki alveg þörf á að henda honum út milli hópa.
Þá hefði Arnar getað fengið skýrari svör um það hvar hann hefur hann. Það hefði verið gott fyrir unga drenginn og Arnar að vera saman í svolítið langan tíma,“ sagði Hörður.