fbpx
Miðvikudagur 13.maí 2026
Fréttir

Tvær stúlkur sýknaðar af ákæru um líkamsárás eftir klúður lögreglu, ákæruvalds og dómara

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 13. maí 2026 18:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Tvær konur hafa verið sýknaðar af ákæru um líkamsárás, ekki sökum þess að sekt þeirra þótti ekki sönnuð heldur vegna þess að lögreglan klúðraði rannsókn málsins. Dómurinn var kveðinn upp í Héraðsdómi Suðurlands þann 4. maí sl.

Meint líkamsárás átti sér stað utandyra þann 8. júlí árið 2023 á hátíðarsvæði sumarskemmtunar. Tvær konur leituðu til lögreglu á svæðinu og sögðu aðra þeirra hafa orðið fyrir líkamsárás. Tvær stúlkur hefðu ráðist á árásarþola, kýlt hana, rifið í hár hennar, snúið hana niður í jörðina og sparkað í hana. Gat árásarþoli sagt til gerenda með nafni. Brotaþoli lýsti því að fjöldi vitna hefði verið að árásinni, þar með taldir fimm menn úr gæslu hátíðarinnar sem hafi ekkert gert til að stöðva árásina. Brotaþoli kærði brotið formlega til lögreglu þann 19. júlí 2023 og fyrir dómi krafðist hún 800 þúsund króna í miskabætur.

Eftir að brotið var kært má segja að málið hafi einkennst af miklum töfum. Sérstaklega verður fjallað um hlut lögreglu að þessum töfum en eins má nefna að fyrst voru ákærur gefnar út gegn konunum í tvennu lagi í júlí á síðasta ári. Þeim málum var vísað frá dómi þar sem ákæruvaldinu hafði láðst að tilgreina kröfur í ákæruskjali. Aðalmeðferð fór svo fram þann 10. febrúar á þessu ári en uppkvaðning dóms dróst fram yfir fjórar vikur svo endurtaka þurfti munnlegan málflutning að kröfu annars verjenda stúlknanna. Málið var svo aftur dómtekið þann 13. apríl og dómur kveðinn upp þann 4. maí.

Dómari í málinu rakti að samkvæmt almennum hegningarlögum fyrnast brot á tveimur árum ef ekki liggur þyngri refsing við þeim en 1 ár í fangelsi eða ef refsing sú sem unnið er til fer ekki fram úr sektum. Um slíkt mál var hér að ræða.

Fyrningarfrestur þessi rofnar þegar rannsókn sakamáls hefst en ef rannsókn stöðvast um óákveðinn tíma þá rýfur hún ekki fyrningu.

Rannsókn lögreglu í þessu máli hófst strax þegar ætlað brot var tilkynnt á áðurnefndri hátíð. Strax var vitað hverjir ætlaðir gerendur væru og nöfn þeirra, kennitölur og heimilisföng tiltekin í frumskýrslu. Um 11 dögum síðar var tekin skýrsla af brotaþola og þann 24. júlí 2023 var leitað eftir myndefni úr eftirlitsmyndavélum.

Síðan gerðist ekkert í rúmlega hálft ár. Skýrslur voru ekki teknar af ætluðum gerendum fyrr en í annars vegar febrúar og hins vegar mars árið 2024. Dómari sagði um þetta:

„Þannig leið hátt á sjöunda mánuð frá því leitað var eftir myndefni úr eftirlitsmyndavélum uns tekin var skýrsla af ákærðu X, en ekki verður séð að neitt hafi raunverulega átt sér stað í millitíðinni. Verður að líta svo á að á þessum tíma hafi rannsókn málsins stöðvast um óákveðinn tíma“

Skýrsla var tekin af einu vitni, vinkonu brotaþola, þann 11. mars 2024 en síðan gerðist ekkert fyrr en rúmu ári síðar, í maí 2025, þegar lögregla óskaði loks eftir áverkavottorði vegna brotaþola. Um þetta sagði dómari:

„Liðu þarna röskir 14 mánuðir án þess að neitt gerðist við rannsókn málsins. Það er álit dómsins að á þessu tímabili hafi rannsókn málsins stöðvast um óákveðinn tíma.“

Ákæruvaldið reyndi í málinu að benda á endurrit úr dagbók lögreglu þar sem voru tilgreind ýmis viðvik lögreglu vegna málsins á þessum tíma, en dómari tók fram að þarna hefði ekki verið um eiginlegar rannsóknaraðgerðir að ræða og því gætu þessar skráningar ekki forðað rannsókninni frá því að teljast stöðvuð um óákveðinn tíma.

Þar með hafi tvívegis orðið löng hlé á rannsókn málsins og óhjákvæmilegt að líta svo á að hér hafi rannsókn stöðvast um óákveðinn tíma. Þar með hafi fyrningarfrestur verið órofinn allar götur frá 8. júlí 2023.

Því voru konurnar sýknaðar. Þær þurfa ekki að greiða sakarkostnað og miskabótakröfu brotaþola var vísað frá dómi. Ríkissjóður situr uppi með sakarkostnaðinn, þar með talið laun skipaðra verjenda kvennanna sem fá hvor fyrir sig 848.160 krónur.

Ekki er óþekkt að tafir við rannsókn hjá lögreglu valdi fyrningu en líklega eru færri dæmi um að klúður hafi átti sér stað hjá lögreglu, ákæruvaldi sem og dómara. Tafir á rannsókn lögreglu urðu til fyrningar í máli þessu en það vekur athygli að ákæruvaldið gefur fyrst út ákæru sem var svo ófullnægjandi að vísa þurfti málinu frá og svo í kjölfarið þarf að flytja málið munnlega í tvígang þar sem dómari dró það of lengi að kveða upp dóm.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 12 klukkutímum

Hildur stórhuga rétt fyrir kosningar – Svona sér hún borgina fyrir sér á næstu áratugum

Hildur stórhuga rétt fyrir kosningar – Svona sér hún borgina fyrir sér á næstu áratugum
Fréttir
Fyrir 12 klukkutímum

Elliði svarar fyrir sig og birtir mynd af sér grútskítugum – „Er þetta virkilega það sem Samfylkingin vill?“

Elliði svarar fyrir sig og birtir mynd af sér grútskítugum – „Er þetta virkilega það sem Samfylkingin vill?“
Fréttir
Í gær

Segja áætlanir borgarinnar um nýtt mannvirki í Vogabyggð allt of dýrar og íburðarmiklar – Gert ráð fyrir allt að 19,3 milljarða kostnaði

Segja áætlanir borgarinnar um nýtt mannvirki í Vogabyggð allt of dýrar og íburðarmiklar – Gert ráð fyrir allt að 19,3 milljarða kostnaði
Fréttir
Í gær

Gylfi blæs á kjaftasögurnar – „Ég vil ekki búa til óvini til að slá pólitískar keilur“

Gylfi blæs á kjaftasögurnar – „Ég vil ekki búa til óvini til að slá pólitískar keilur“
Fréttir
Í gær

Verðandi sendiherra á Íslandi deilir ræðu þekkts nýnasista – Vill að konur verði sviptar kosningarétti og menntun

Verðandi sendiherra á Íslandi deilir ræðu þekkts nýnasista – Vill að konur verði sviptar kosningarétti og menntun
Fréttir
Í gær

Tíu grísir drápust eftir innbrot á Kjalarnesi: „Dýrin voru augljóslega í miklu uppnámi“

Tíu grísir drápust eftir innbrot á Kjalarnesi: „Dýrin voru augljóslega í miklu uppnámi“