

Erlendur ferðamaður sem pantaði gistingu á Íslandi þann 12. ágúst næstkomandi, þegar sólmyrkvinn mikli skellur á, fyrir löngu síðan lenti í því af gistingunni var aflýst og svo auglýst aftur á margföldu verði.
„Ég bókaði ferð mína til Íslands fyrir einu og hálfu ári til að sjá sólmyrkvann… nú er verið að aflýsa öllu,“ segir erlendur ferðamaður í færslu á samfélagsmiðlinum Reddit.
Eins og flestir vita mun almyrkvi sólu sjást vestast á Íslandi þann 12. ágúst næstkomandi. Það er á Vestfjörðum, Snæfellsnesi, Reykjanesi og á höfuðborgarsvæðinu ef veður leyfir. Mikil ásókn hefur verið í gistingu og ferðir til Íslands á þessum tíma þar sem fólk vill sjá þetta mikla sjónarspil á himninum.
Hér gildir lögmálið um framboð og eftirspurn og hefur verð á gistingu á þessum tíma rokið upp úr öllu valdi. En nú eru komin upp dæmi um að gististaðir séu að aflýsa herbergjum ferðamanna sem pöntuðu á mun lægra verði fyrir löngu síðan til þess að geta rukkað meira.
„Ég planaði þessa ferð með miklum fyrirvara sérstaklega út af sólmyrkvanum. Ég bókaði camper bíl, hótel og airbnb (til vara) fyrir meira en einu og hálfu ári síðan, festi dagsetningarnar og hélt að ég væri í góðum málum,“ segir ferðamaðurinn ósátti. „Spólum áfram til dagsins í dag og nú er gististaðurinn að aflýsa og vitna í „ófyrirséðar aðstæður.“ Tímasetningin passar nákvæmlega við sólmyrkvann.“
Hafði bæði airbnb íbúðinni og camper bílnum verið aflýst. Þrátt fyrir þessa aflýsingu hafði skyndilega losnað rými hjá sama gististað. En nú á margföldu verði.
„Ég athugaði verðið af forvitni og þetta er algjörlega klikkað. Það sem ég bókaði á sínum tíma er nú auglýst á margföldu verðinu sem ég átti að borga, ef það er yfir höfuð hægt að panta núna,“ segir hann. „Ég skil það að verðið hækki þegar stórir atburðir eru í gangi en að aflýsa gömlum pöntunum til þess að geta auglýst aftur á mun hærra verði finnst mér vera ansi skuggalegt.“
Kom í ljós að þessi ferðamaður er alls ekki sá eini sem hefur lent í þessu. Einkum á þetta við um airbnb íbúðir.
„Þetta kom fyrir okkur líka. Við bókuðum airbnb fyrir einu og hálfu ári og þeir aflýstu fyrir tveimur vikum,“ segir einn í athugasemdum.
„Þetta kom fyrir mig á sólmyrkvanum árið 2017. Við pöntuðum airbnb með árs fyrirvara. Mánuði áður en við áttum að mæta fékk ég skilaboð frá eigandanum sem ég bjóst við að væri til að klára málið en þá sagði hann að íbúðin væri „ónýt“. Ég endaði á að þurfa að panta hótelherbergi á 500 dollara [innsk: 62 þúsund krónur]. Ég hef ekki pantað airbnb síðan þá,“ segir annar.
Þá hafa ferðamenn einnig lent í því að hótel aflýsi ferðum.
„Hótelið okkar var að aflýsa! Og við höfum ekki fundið neitt annað á eðlilegu verði í staðinn,“ segir einn ósáttur ferðamaður.