fbpx
Sunnudagur 03.maí 2026
Fréttir

Svara Jóni fullum hálsi – „Ég kaus hann“

Ritstjórn DV
Föstudaginn 1. maí 2026 12:00

Jón Gnarr.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ingvar Smári Birgisson lögmaður og fulltrúi Sjálfstæðisflokksins í stjórn RÚV og Andrea Sigurðardóttir blaðamaður á Morgunblaðinu mótmæla harðlega þeim orðum Jóns Gnarr, þingmanns Viðreisnar, að fréttaflutningur blaðsins af greiðslum RÚV til Jóns sé afsprengi pólitísks hráskinnaleiks. Samkvæmt fréttum Morgunblaðsins fékk Jón greitt fyrir skemmtiatriði í spjallþætti Gísla Marteins Baldurssonar. Atriðið fór mjög fyrir brjóstið á andstæðingum aðildar Íslands að Evrópusambandinu og gagnrýnt var að stjórnarþingmaður stæði fyrir slíku. Ingvar spurðist fyrir á stjórnarfundi RÚV um hvort Jón hafi fengið greitt fyrir atriðið og svaraði Stefán Eiríksson útvarpsstjóri, samkvæmt fundargerð, því játandi. Jón neitaði því hins vegar alfarið að hafa fengið greitt fyrir þátttöku sína en Ingvar segir ekkert persónulegt hafa verið á bak við fyrirspurnina og hann kunni vel við Jón. Útvarpsstjóri hefur nú staðfest að Jón hafi ekki fengið greitt fyrir atriðið.

Jón Gnarr fékk ekki greitt fyrir atriðið eins og fullyrt var í Morgunblaðinu – „Óvönduð blaðamennska“

Blaðamenn

Frétt Morgunblaðsins byggði á fundargerð stjórnar RÚV, frá því í mars síðastliðnum, þar sem fram kemur að Stefán hafi svarað spurningu Ingvars um hvort Jón hafi þegið greiðslur fyrir atriðið játandi.

Ingvar Smári Birgisson,. Mynd: Skjáskot YouTube.

Jón sagði í Facebook-færslu að greinilega hafi Ingvar, sem hann nefnir þó ekki á nafn, og Morgunblaðið haft samvinnu um málið og gerði athugasemd við að blaðamaður hafi ekki haft samband við hann við vinnslu fréttarinnar. Vildi hann meina að það væru eðlileg vinnubrögð blaðamanna. Um hafi verið að ræða pólitískan hráskinnaleik og óvönduð vinnubrögð af hálfu blaðamanns

Þótt Jón nefni ekki Andreu sem blaðamanninn sem skrifaði fréttina þá segir hún í Facebook-pistli þingmanninn saka hana að ósekju um að taka þátt í pólitískum hráskinnaleik með því að skrifa fréttina.

Andrea Sigurðardóttir

Andrea lætur þess þó ekki getið að hún er virkur þátttakandi í starfi Sjálfstæðisflokksins og hefur marg sinnis í færslum á samfélagsmiðlum gagnrýnt stefnu og störf ríkisstjórnarinnar og þeirra flokka sem að henni standa.

Andrea segir það eðlileg vinnubrögð að byggja frétt á fundargerð stjórnar opinbers félags eins og RÚV sé. Raunar hafi Morgunblaðið marg sinnis reynt að ná sambandi við Jón vegna fréttarinnar en hann ekki svarað símtölum:

„Jón Gnarr valdi, eftir drjúga umhugsun að skjóta sendiboðann, að grafa undan starfsheiðri mínum fyrir að segja frétt af honum, sem byggði á ábyggilegri og opinberri heimild og vísað var í með beinum hætti.“

Ekkert persónulegt

Ingvar deilir færslu Andreu og segir:

„Það er magnað hvernig Jón Gnarr fór strax í einhverjar samsæriskenningar um samstarf Moggans við mig.“

Ingvar vitnar í orð Jóns um að vegið hafi verið að starfsheiðri hans en segir að ekkert persónulegt hafi verið á bak við fyrirspurnina um hvort Jón hafi fengið greitt fyrir atriðið. Vel geti verið að Jón hafi aldrei sent reikning vegna atriðisins í þætti Gísla Marteins en miðað við svör útvarpsstjóra hafi staðið til að greiða þingmanninum fyrir þátttöku sína:

„Jón stillir þessu einnig upp eins og það sé vegið að starfsheiðri hans með þessari umfjöllun. Það er ekkert persónulegt bakvið þessa umfjöllun eða fyrirspurn mína. Ég kann ágætlega við Jón og get reyndar upplýst um hér að ég kaus hann í síðustu forsetakosningum. Þessi umfjöllun snýst um fjölmiðla og hvað sé eðlilegt að ríkisfjölmiðill gerir í ljósi hlutlægnisskyldu sinnar.“

Uppfært 12:14

Stefán Eiríksson útvarpsstjóri hefur staðfest við Vísi að enginn reikningur hafi borist RÚV frá Jóni vegna atriðisins og því hafi hann ekki fengið greitt fyrir það.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Virtur miðill fjallar um sundlaugamenningu Íslands og greinir frá áhyggjum Íslendinga – „Við viljum halda þessu út af fyrir okkur“

Virtur miðill fjallar um sundlaugamenningu Íslands og greinir frá áhyggjum Íslendinga – „Við viljum halda þessu út af fyrir okkur“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Danska konan skuldar Gunnari um 11 milljónir – „Ég er alveg brjálaður yfir þessu“

Danska konan skuldar Gunnari um 11 milljónir – „Ég er alveg brjálaður yfir þessu“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Eiríkur fékk ábendingu um hver sendi nafnlausa bréfið um afa hans – „Aldrei djók eða fyndið“

Eiríkur fékk ábendingu um hver sendi nafnlausa bréfið um afa hans – „Aldrei djók eða fyndið“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Benedikt á inni greiðslur hjá Dönsku konunni – „Því miður klassískt í íslenskri kvikmyndagerð að fólk fresti laununum sínum“

Benedikt á inni greiðslur hjá Dönsku konunni – „Því miður klassískt í íslenskri kvikmyndagerð að fólk fresti laununum sínum“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Segja fjárhagsstöðu Seltjarnarness enn versna – Handbært fé um áramót dugði fyrir 3 daga rekstri

Segja fjárhagsstöðu Seltjarnarness enn versna – Handbært fé um áramót dugði fyrir 3 daga rekstri
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Fjórir í gæsluvarðhaldi í umfangsmiklu fíkniefnamáli

Fjórir í gæsluvarðhaldi í umfangsmiklu fíkniefnamáli