

Jóhann Skúli Jónsson, gjarnan kallaður Jói Skúli, var gestur Helga Fannars í nýjasta þætti af Íþróttavikunni og með þeim var einnig Hörður Snævar Jónsson.
Stjarnan byrjaði á sigrum gegn KA og FH í Bestu deild karla en hefur nú tapað tveimur í röð gegn sterkum liðum Víkings og Vals.
Stjarnan styrkti leikmannahóp sinn vel í vetur og ætlar sér stóra hluti.
„Ef Stjarnan tapar og Víkingur vinnur sem dæmi, þá getur Stjarnan bara sagt bless við það sem þeir voru að gera sér væntingar um fyrir mót, að vera í titilbaráttu,“ sagði Hörður.
„Gengi KA og FH í kjölfar þessara leikja setur þessa leiki svolítið í nýtt samhengi, það eru arfaslök lið eins og staðan er,“ sagði Helgi, sem spurði svo hvort þeir teldu sæti Jökuls þjálfara heitt.
„Ég átta mig ekki á hvernig landið liggur þarna en það er oft svolítið þungt í kringum hann,“ sagði Jóhann.
„Miðað við þá Garðbæinga sem maður hefur talað við er enginn millivegur, þú ert með honum eða á móti honum,“ sagði Hörður.
Nánar í spilaranum.