

Jóhann Skúli Jónsson, gjarnan kallaður Jói Skúli, var gestur Helga Fannars í nýjasta þætti af Íþróttavikunni og með þeim var einnig Hörður Snævar Jónsson.
Töluverð umræða hefur skapast síðustu daga um fyrirkomulag leikja í Bestu deild karla, en ólíkt síðustu árum fara margir leikir fram á sama tíma.
„Ég er hrifinn af þessu, en í grunninn finnst mér við sýna allt of marga leiki í beinni. Þegar maður var að fara mikið á völlinn var ekkert skemmtilegra en að fara á leik í Smáranum til dæmis og bruna svo heim til að sjá markaþáttinn því þar sástu allt.
Markaþættirnir í dag, maður er búinn að sjá þetta allt. Þannig þetta býr til að maður velur bara einn leik til að horfa á og fer svo inn í markaþáttinn því maður á eftir að sjá atvikin,“ sagði Hörður um málið.
„Á meðan það er eitthvað annað í gangi til að horfa á finnst mér þetta fínt en mér finnst líka bara geggjað að geta sest upp í sófa og það eru leikir frá hádegi til 22,“ sagði Jóhann áður en Helgi tók til máls.
„Svo er kannski hægt að fara einhvern milliveg í þessu, hægt að vera með fjóra leiki á sama tíma og hægt að hafa zone og verið svo með tvo flotta leiki staka.“
Nánar í spilaranum