

Leikmenn Breiðabliks og þjálfarateymi munu ferðast til Vestmannaeyja á sunnudag með þyrlu. Þetta hefur 433.is fengið staðfest.
Þyrlan mun ferja leikmenn og teymi Breiðabliks frá Bakka í Landeyjum og yfir til Eyja. Líklega þarf þyrlan að fara 5-6 ferðir til að koma öllum yfir.
Flogið verður með HeliAir Iceland/Reykjavík Helicopters og er þetta mesta lúxus þyrla landsins, 6 sæta Bell407 GXP.

Blikar kjósa að gera þetta frekar en að ferðast með Herjólfi kvöldið áður en Herjólfur siglir til Þorlákshafnar þessa dagana. Siglingin tekur að minnsta kosti rúma þrjá klukkutíma og hafa því Blikar ákveðið að fara þessa leið frekar en að taka bátinn.

Breiðablik heimsækir ÍBV í Bestu deild karla á sunnudag en þyrlan mun svo ferja leikmenn og teymið aftur upp á land að leik loknum.