fbpx
Föstudagur 01.maí 2026
Pressan

Dularfullur líkfundur á Kanaríeyjum

Pressan
Fimmtudaginn 30. apríl 2026 17:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Líkamsleifar fundust á byggingarsvæði í Jinámar á Gran Canaria á miðvikudagsmorgun. Hefur málið vakið óhug íbúa í bænum.

Canarian Weekly greinir frá.

Byggingaverkamenn sem unnu að uppgrefti á svæðinu ráku augun í höfuðkúpu og er dýpra var grafið kom í ljós beinabind af manni.

Vinnu á svæðinu var samstundis hætt og lögregla kölluð til sem setti í gang rannsókn á vettvangi. Talið er að beinagrindin hafi verið grafin á svæðinu fyrir nokkuð löngu síðan, en ekkert er þó staðfest í þeim efnum.

Réttarmeinafræðingar hafa tekið yfir rannsókn málsins í bili. Lögregla útilokar enga möguleika hvað varðar dánarorsök en ekki liggur fyrir á þessari stundu hvort hinn látni hafi verið myrtur.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fundarhöld um helgina
Pressan
Fyrir 3 dögum

Konan sem giftist föður sínum rýfur þögnina um stöðu sína í dag

Konan sem giftist föður sínum rýfur þögnina um stöðu sína í dag
Pressan
Fyrir 3 dögum

Missti dóttur sína tíu árum eftir mislingasmit – þetta vill hún að allir foreldrar viti

Missti dóttur sína tíu árum eftir mislingasmit – þetta vill hún að allir foreldrar viti
Pressan
Fyrir 4 dögum

Foreldrar sakaðir um gáleysi eftir að sonur þeirra kastaði styttu fram af svölum – þrítug kona lést

Foreldrar sakaðir um gáleysi eftir að sonur þeirra kastaði styttu fram af svölum – þrítug kona lést
Pressan
Fyrir 4 dögum

Hljóp á eftir hundinum og sást aldrei aftur – 50 ár frá hvarfi Sandy Davidson

Hljóp á eftir hundinum og sást aldrei aftur – 50 ár frá hvarfi Sandy Davidson