

Mynd sem sögð er sýna varabúning Manchester United fyrir tímabilið 2026/27 hefur lekið á netið og viðbrögð stuðningsmanna hafa ekki látið á sér standa.
Samkvæmt myndunum verður búningurinn konungsblár með rauðum og hvítum áherslum á ermum og kraga. Þá er hið klassíska Adidas-merki á brjóstinu ásamt styrktaraðilanum Snapdragon.
Stuðningsmenn United virðast almennt ánægðir með hönnunina og margir segja félagið hafa „farið aftur í grunninn“ eftir umdeilda útibúninga undanfarinna ára.
Útibúningar félagsins hafa vakið blendin viðbrögð á síðustu árum, þar á meðal bleiki búningurinn frá 2018/19, sebrabúningurinn frá 2020/21 og skærgræni búningurinn frá 2022/23.
Nýi búningurinn virðist hins vegar sækja innblástur í eldri útgáfur félagsins, þar sem blár litur hefur oft verið hluti af varabúningum United í gegnum tíðina.
Félagið hefur ekki staðfest búninginn opinberlega enn sem komið er, en ef lekinn reynist réttur gæti þetta orðið einn vinsælasti útibúningur United í nokkur ár.