

Ana Maria Marković varð fyrir slæmu nefbroti á æfingu með Brooklyn Women’s Football Club og deildi reynslunni með fylgjendum sínum á samfélagsmiðlum.
Króatíska knattspyrnukonan, sem hefur oft vakið athygli utan vallar sem ein glæsilegasta knattspyrnukona heims að mati fjölmiðla, sagði frá því að meiðslin hefðu orðið í skallaeinvígi á æfingu.
„Já, ég nefbrotnaði… systir mín braut nefið mitt,“ sagði Marković í léttum tón í myndbandi þar sem hún útskýrði atvikið.

Hún sýndi einnig frá meðferðinni þegar læknir setti nefið aftur á sinn stað og viðurkenndi að sársaukinn hefði verið mikill.
„Þetta var einn versti sársauki sem ég hef fundið. Ég hata sprautur,“ sagði hún.
Marković bætti við að læknirinn hefði sagt að aðeins 70 prósent líkur væru á að nefið færi alveg í fyrra horf án aðgerðar, sem hún sagðist ekki vera sátt við.
Stuðningsmenn hennar sendu henni fjölmörg bataboð á samfélagsmiðlum eftir færsluna.