

Cristiano Ronaldo svaraði stuðningsmönnum Al-Ahli fullum hálsi eftir sigur Al-Nassr, 2-0, í toppslag í Sádi-Arabíu.
Ronaldo kom Al-Nassr yfir á 76. mínútu með skalla eftir hornspyrnu áður en Kingsley Coman innsiglaði sigurinn undir lok leiks.
Með sigrinum lauk Al-Nassr titilvonum Al-Ahli og liðið er nú með átta stiga forskot á toppi deildarinnar, þó Al-Hilal eigi leik til góða.
Eftir leikinn gerðu stuðningsmenn Al-Ahli grín að Ronaldo með því að minna hann á að félagið hefði unnið
Asíumeistaradeildina tvisvar í röð, á meðan Al-Nassr hefur aldrei unnið keppnina.
Ronaldo lét það ekki á sig fá og svaraði í sjónvarpsviðtali með því að hrópa: „Ég á fimm Meistaradeildartitla!“
Portúgalinn hélt þá uppi fimm fingrum til stuðningsmanna og brosti breitt. Ronaldo vann einn Meistaradeildartitil með Manchester United og fjóra með Real Madrid.
🖐🏼 Cristiano Ronaldo to Al Ahli fans showing him their 2 Asian Champions Leagues in a row…
“I have five UCLs”. 🏆🏆🏆🏆🏆😁@assaf74 🎥 pic.twitter.com/aMhthFeZvY
— Fabrizio Romano (@FabrizioRomano) April 29, 2026