

Guglielmo Vicario virðist vera á leið frá Tottenham Hotspur í sumar ef marka má nýjustu fréttir frá Ítalíu.
Samkvæmt ítölskum miðlum hefur markvörðurinn þegar náð fullu samkomulagi um persónulega skilmála við Inter Milan. Þar með á aðeins eftir að semja á milli félaganna ef af félagaskiptunum verður.
Inter vonast til þess að Tottenham falli úr ensku úrvalsdeildinni, þar sem það myndi veikja samningsstöðu Lundúnaliðsins og gera ítalska félaginu kleift að fá Vicario á lægra verði.
Vicario er sagður tilbúinn að snúa aftur til Serie A eftir þrjú tímabil og yfir 100 leiki í ensku knattspyrnunni.
Tottenham greiddi um 17 milljónir punda fyrir hann frá Empoli árið 2023 og á hann enn tvö ár eftir af samningi sínum.
Tottenham er í fallbaráttu með aðeins fjóra leiki eftir og gæti framtíð margra leikmanna ráðist af því hvort liðið heldur sæti sínu í deildinni.