

Mason Mount segir að markmið sitt sé skýrt: að vinna ensku úrvalsdeildina með Manchester United.
Mount lét þessi orð falla þegar hann tók þátt í góðgerðarviðburði á St George’s Park þar sem hann stýrði liði barna með alvarlega sjúkdóma í sérstökum sýningarleik. Þar ræddi hann einnig um eigin framtíðarmarkmið.
„Já, það er markmið mitt, ég vil vinna úrvalsdeildina,“ sagði Mount.
„Ég hef unnið Meistaradeildina áður, en að vinna deildina með Manchester United væri ótrúlegt.“
Miðjumaðurinn telur að United hafi burði til að berjast um titilinn á næsta tímabili.
„Það kann að virðast langt í land, en maður verður að hafa þann hugsunarhátt. Við höfum sýnt hvað við getum gegn stóru liðunum, Manchester City, Liverpool, Chelsea og Arsenal. Við getum þetta.“
Mount bætti við að sigur í FA-bikarnum með félaginu hefði gefið honum smjörþefinn af því hvernig það væri að vinna með United, en að deildartitill myndi toppa allt.
Enski landsliðsmaðurinn vonast einnig til að spila stærra hlutverk á Old Trafford á næsta tímabili og vinna sér aftur sæti í landsliðinu.