

Bandaríski leikarinn Ian Somerhalder, sem þekktastur er fyrir hlutverk sín í sjónvarpsþáttunm The Vampire Diaries og Lost skuldaði stórfé, sem hann átti erfitt með að sigrast á eftir að viðskiptasamningur fór út um þúfur.
Eftir að hafa leikið í tveimur af stærstu sjónvarpsþáttum 20. aldarinnar mætti búast við að leikarinn hafi verið velauðugur. Staðreyndin er hins vegar sú að Somerhalder, sem hætti í leiklistinni árið 2019, og eiginkona hans, Nikki Reed, skulduðu 8 stafa tölu eftir að viðskiptafyrirætlanir þeirra gengu ekki upp.
„Ég lét af störfum í leiklist fyrir sjö árum,“ sagði Somerhalder við E! News í gær. „Ég hætti ótrúlega arðbærum sjónvarpsferli eftir fjárhagslegt umrót við að byggja upp fyrirtæki sem byggðist ekki upp almennilega. Og vegna svika kom það mér og konunni minni í átta stafa holu.“
Og það var hola sem var sérstaklega „erfitt að komast upp úr“, viðurkenndi Somerhalder, en hann þakkaði eiginkonu sinni yrir að hafa átt stóran þátt í að þau komust aftur á rétta braut.
„Hún samdi okkur virkilega út úr þessum samningi en við seldum hús, málverk, bíla, úr, allt.“

Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Somerhalder hefur talað um hlutverk eiginkonu sinnar í að koma lífi hans aftur í lag: „Þessi kona ákvað að hún vildi ekki sjá eiginmann sinn eyðileggja líkama/hug/anda hans og lét hendur standa fram úr ermum og safnaði teymi saman til að komast að samningaborðinu til að finna leið út fyrir okkur. Hún helgaði líf sitt því að hjálpa mér út úr þessum vanda.“
Stór hluti fjárhagsvandræða parsins stafaði af hörmulegu viðskiptaævintýri sem leiddi til þess að parið varð fórnarlamb svika.
Áður en Somerhalder hóf samband við Reed byggði hann upp orkufyrirtæki og fjárfesti stóran hluta af tekjum sínum í fyrirtækinu á meðan hann var enn að leika í The Vampire Diaries. Auk þess að leggja fram háar fjárhæðir gekkst hann einnig undir „risastórar persónulegar ábyrgðir til banka“.
Segir hann að hlutirnir hefðu fljótlega farið úrskeiðis „vegna græðgi og svika innan þess fyrirtækis og svikalegrar starfsemi stærsta viðskiptavina okkar.“
Tímabundið hrun olíu- og gasiðnaðarins á þeim tíma olli einnig usla í framtíð fyrirtækisins og þýddi að lokum að Somerhalder gat ekki staðið undir skuldbindingum sínum til lánardrottna.
Somerhalder segir litið til baka að hann „hefði átt að vera að hætta störfum hjá einum stærsta sjónvarpsþætti í heimi“ í stað þess að „stofna fyrirtæki sem myndi aldrei borga mér laun.“