fbpx
Laugardagur 02.maí 2026
Fréttir

Benedikt á inni greiðslur hjá Dönsku konunni – „Því miður klassískt í íslenskri kvikmyndagerð að fólk fresti laununum sínum“

Ágúst Borgþór Sverrisson
Fimmtudaginn 30. apríl 2026 09:58

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Benedikt Erlingsson, höfundur og leikstjóri hinnar vinsælu þáttaráðar, Dönsku konunnar, er alls ekki ósáttur við framleiðendur þáttanna þó að hann eigi enn inni hjá þeim launagreiðslur. Segir hann framleiðendurna hafa gert mjög góða og gegnsæja samninga við allt starfsfólk þáttanna og laun eigi eftir að skila sér.

Morgunblaðið greinir frá því í dag að ekki hafi tekist að klára allar launagreiðslur vegna þáttanna. Fólk sem vann við hljóð, kvikmyndatöku, tónlist og eftirvinnslu eigi inni laun, sem og skapari þáttanna, Benedikt Erlingsson. Framleiðendur eru þær Marianna Slot og Carine Leblanc. Í fréttinni segir ennfremur:

„Þó að talsverð kergja sé vegna þessa er samt talið líklegt að hægt verði að klára launagreiðslur. Framleiðendur hafa gengið frá samningi við þá sem eiga inni laun um að þeir gangi fyrir þegar greiðslur berast ef serían verður seld til fleiri landa.“

Segir að bjartsýni ríki um að takist að selja þættina víða eftir þær frábæru viðtökur sem þeir hafa hlotið í Danmörku.

Fá vexti og vaxtavexti

Það kemur ekki fram í frétt Morgunblaðsins að Benedikt er í fullri sátt við framleiðendur þáttanna og er ánægður með samning sinn við þá.

„Það er því miður klassískt í íslenskri kvikmyndagerð að fólk fresti laununum sínum. Við lentum í erfiðleikum en það er allt mjög gegnsætt, flott og heiðarlegt hjá framleiðendunum. Það er sátt á milli framleiðendanna og mín og allra þeirra sem framleiðendurnir skulda. Það gerðu allir mjög flotta, gegnsæja samninga þar sem menn fá launin sín bæði með vöxtum og vaxtavöxkum – og bónus þegar peningarnir koma.“

Aðspurður staðfestir Benedikt að dráttur á greiðslum hafi ekki varpað neinum skugga á verkefnið.

„Þetta sýnir bara hvað erfitt er að gera svona öðruvísi og frumlegra efni en venjulega er. Það væri ábyggilega ekkert mál að fjármagna svona seríu ef það væri lík af ungri konu sem fyndist í flæðarmálinu og svo byrjuðu menn að finna út úr því. Þetta er slagur. En það hefur verið komið mjög heiðarlega og vel fram við okkur. Mér finnst þessi samningur sem við gerðum í raun vera trygging fyrir greiðslu og hann er alveg til fyrirmyndar. Það hefur verið komið mjög heiðarlega fram við okkur. “

 

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Krafðist þess að fá hlutdeild í séreign látins sambýlismanns á grundvelli erfðaskrár – Hæstiréttur hefur nú lagt línurnar

Krafðist þess að fá hlutdeild í séreign látins sambýlismanns á grundvelli erfðaskrár – Hæstiréttur hefur nú lagt línurnar
Fréttir
Í gær

Ein helsta stjarna breskra stjórnmála sökuð um að taka málstað hryðjuverkamanns

Ein helsta stjarna breskra stjórnmála sökuð um að taka málstað hryðjuverkamanns
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Naut „stjaksetti“ einn frægasta nautabana Spánar á endaþarminum – Getur ekki sofið eða borðað

Naut „stjaksetti“ einn frægasta nautabana Spánar á endaþarminum – Getur ekki sofið eða borðað
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ævintýri Tinna í dómsal – Belgískt félag stefndi Pennanum fyrir brot gegn höfundarrétti

Ævintýri Tinna í dómsal – Belgískt félag stefndi Pennanum fyrir brot gegn höfundarrétti