
Úkraínski kantmaðurinn Mykhailo Mudryk hjá Chelsea hefur áfrýjað fjögurra ára banni til sínu til alþjóðlega íþróttadómstólsins.
Mudryk hefur verið frá keppni í tæplega 18 mánuði eftir að hafa fallið á lyfjaprófi. Fékk hann upphaflega bráðabirgðabann í desember 2024 en síðar hámarksrefsingu upp á fjörurra ára bann.
Þýðir það að Mudryk getur snúið aftur á fótboltavöllinn í desember 2028. Vonast hann með áfrýjuninni eftir því að það verði fyrr.
Efnið sem Mudryk á að hafa tekið getur aukið þol leikmanna, en hann hefur ávallt neitað sök.