
Arkitektinn Rex Heuermann hefur játað á sig átta morð. Sjö af fórnarlömbum hans fundust, að fullu eða hluta, á Gilgo-ströndinni svokölluðu á Long Island, en það fundust þó fleiri lík á svæðinu. Eftir stendur spurningin um það hver beri ábyrgð á hinum líkunum.
Rétt er að nefna Shannan Gilbert fyrsta í þessu samhengi. Hún var 23 ára vændiskona sem hvarf í maí árið 2010 eftir að hafa hitt viðskiptavin á Long Island. Að beiðni lögreglu hóf lögregla víðtæka leit að Gilbert, en leit þessi varð til þess að fórnarlömb Heuermanns fundust. Margir gætu talið að Gilbert hafi verið ein af fórnarlömbum arkitektsins, en lögreglan er á öðru máli. Beinagrind hennar fannst loksins í mýri skammt frá Gilgo-ströndinni í desember árið 2011. Krufning fór fram í kjölfarið en ekki tókst að finna dánarorsök. Fjölskylda Gilbert pantaði þá óháða krufningu en réttarmeinafræðingurinn sem framkvæmdi hana taldi sig finna vísbendingar um að Gilbert hefði verið banað með kyrkingu en þó væri ekki hægt að slá því á föstu. Lögregla telur að Gilbert hafi látið lífið af slysförum. Hún hafi orðið hrædd eftir að hitta viðskiptavin og forðað sér á hlaupum en svo lent í sjálfheldu í mýrinni.
Næst er það Peaches, eða svo var líkið kallað þar til lögreglu tókst nýlega að bera kennsl á hina látnu. Hún hét Tanya Jackson og var uppgjafahermaður. Búkur hennar fannst árið 1997 í West Hempstead-þjóðgarðinum á Long Island. Lögreglu tókst ekki að bera kennsl á hana fyrr en tæpum þrjátíu árum síðar en í millitíðinni hlaut Tanya viðurnefnið Peaches út af húðflúri sem hún bar. Það var svo í apríl árið 2011 sem útlimir Tanyu fundust við Gilgo-ströndina ásamt líkamsleifum tveggja ára dóttur hennar.
Tayna og dóttir hennar fengu nöfn sín aftur í apríl á síðasta ári þegar lögreglu tókst loksins að bera kennsl á þær þökk sé framförum í erfðagreiningartækni. Tanya var 26 ára gömul þegar hún lést og hafði þjónað í bandaríska hernum á árunum 1993-1995. Ekki er talið að Heuermann hafi banað mæðgunum en barnsfaðir Tanyu, Andrew Dykes, var handtekinn í desember og ákærður. Dykes var giftur tveggja barna faðir þegar hann fór að slá sér upp með Tanyu en þau kynntust í gegnum herinn. Síðan fæddist þeim dóttir. Lögregla telur að Dykes hafi ákveðið að losa sig við mæðgurnar en hann neitar þó sök. Dykes hefur aðeins verið ákærður fyrir morðið á Tanyu en lögregla telur þó að hann beri líka ábyrgð á andláti dóttur þeirra en ekki þykja vera næg sönnunargögn fyrir hendi til að ákæra fyrir bæði morðin.
Við Gilgo-ströndina fundust líka líkamsleifar af ungum karlmanni af asískum uppruna. Hann hefur gengið undir viðurnefninu Asian Doe, eða óþekktur asískur karlmaður. Lögregla telur þó mögulegt að um trans konu hafi verið að ræða þar sem líkið fannst í kvenmannsfötum. Ekki hefur tekist að bera kennsl á líkið. Dánarorsök var högg með barefli og er talið að andlátið hafi átt sér stað árið 2006. Asian Doe var smávaxinn, líklega á aldrinum 17–23 ára og starfaði mögulega við vændi. Lögregla hefur ekki viljað tjá sig um hvort Heuermann sé grunaður um morðið, enda skipti það í raun ekki máli ef ekki er hægt að sanna það.
Heuermann var giftur hinni íslensku Ásu Ellerup en þau skildu eftir að arkitektinn var handtekinn. Fram hefur komið í umfjöllun fjölmiðla að skilnaðurinn hafi einkum átt sér stað til að vernda Ásu og börn hennar frá mögulegum lögsóknum fjölskyldna látnu kvennanna. Ása trúði því ekki að maður hennar væri raðmorðingi fyrr en hann játaði sjálfur fyrir henni morðin.
Ása gerði samning við Peacock-streymiveituna í tengslum við heimildarþættina Gilgo Beach Killer: House of Secrets. Þættirnir voru sýndir í fyrra en hafa nú bætt við aukaþætti sem fjallar um játningu arkitektsins og viðbrögð Ásu við henni.
Áhugasamir geta nálgast þættina hjá Sjónvarpi Símans en stiklu má sjá hér fyrir neðan.
GilgoBeachKiller