
Viktor Bjarki Daðason er farinn að skora í dönsku úrvalsdeildinni og skoraði hann frábært mark fyrir FC Kaupmannahöfn á mánudag.
Viktor Bjarki, sem er aðeins 17 ára gamall, kom upp í aðallið FCK fyrr á þessari leiktíð og vakti athygli fyrir markaskorun í Meistaradeild Evrópu.
Á dögunum skoraði hann svo sitt fyrsta mark í dönsku úrvaldeildinni og skoraði hann aftur gegn Vejle í upphafi vikunnar.
Afgreiðslan var afar lagleg, eins og sjá má hér að neðan.