fbpx
Föstudagur 01.maí 2026
Pressan

Léttist um 74 kíló – Algeng mistök foreldra kostuðu hana nær allt

Pressan
Föstudaginn 1. maí 2026 18:00

Myndin tengist fréttinni ekki beint. Mynd:Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Við höfum mörg lent í þessu: Börnin sitja og narta bara í matinn, skilja síðan helminginn af honum eftir á disknum og sem skyldurækið foreldir tekur maður að sér að hreinsa diskinn með því að borða afgangana.

Þetta reyndist vera hættuleg gildra fyrir Casey Gemmell, 33 ára, og raunar varð þetta að lífshættulegum ávana.

Hún áttaði sig á því þegar hún klæddist Batmanbúningi í barnaafmæli. Hún sá mynd af sjálfri sér í búningnum í stærðinni 5XL og þá var eins og spegill brotnaði fyrir framan hana.

Hún var orðin 159 kíló og þekkti bara ekki konuna í speglinum. Nú var kominn tími til að taka í neyðarhemilinn.

Hún byrjaði á að skoða hvað hún gerði daglega og komst fljótt að því hvar ástæðurnar fyrir öllum aukakílóum voru. Það voru ekki bara stórir skammtar í hverri máltíð sem komu við sögu, því allir „litlu“ bitarnir sem hún tók af diskum barnanna sinna, maturinn sem þau skildu eftir ósnertan.

„Börnin mín borða aldrei allan matinn sinn svo ég borðaði afgangana af diskunum þeirra í ofanálag við minn mat. Yfirleitt var þetta skyndibitamatur,“ sagði hún í samtali við Metro.

Þetta er klassísk gildra sem margir foreldrar ganga í daglega. Maður hugleiðir ekki að það sem börnin borða ekki af diskunum sínum, verður fljótt að auka máltíð þegar allt safnast saman yfir daginn.

Fyrsta skrefið sem Casey tók var að hætta að borða afgangana, síðan breytti hún eigin mataræði og náði sér í hlaupaapp og fór að hreyfa sig. Allt þetta plús viljastyrkur gerði að verkum að kílóin fóru að hrynja af henni.

Hún léttist um 74 kíló, tæplega helming líkamsþyngdar sinnar og gat nú farið að klæðast þeim fötum sem hana langaði til.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fundarhöld um helgina
Pressan
Fyrir 3 dögum

Konan sem giftist föður sínum rýfur þögnina um stöðu sína í dag

Konan sem giftist föður sínum rýfur þögnina um stöðu sína í dag
Pressan
Fyrir 3 dögum

Missti dóttur sína tíu árum eftir mislingasmit – þetta vill hún að allir foreldrar viti

Missti dóttur sína tíu árum eftir mislingasmit – þetta vill hún að allir foreldrar viti
Pressan
Fyrir 4 dögum

Foreldrar sakaðir um gáleysi eftir að sonur þeirra kastaði styttu fram af svölum – þrítug kona lést

Foreldrar sakaðir um gáleysi eftir að sonur þeirra kastaði styttu fram af svölum – þrítug kona lést
Pressan
Fyrir 4 dögum

Hljóp á eftir hundinum og sást aldrei aftur – 50 ár frá hvarfi Sandy Davidson

Hljóp á eftir hundinum og sást aldrei aftur – 50 ár frá hvarfi Sandy Davidson