fbpx
Miðvikudagur 29.apríl 2026
Fréttir

Ný könnun í Kópavogi: Miklar sviptingar og margir möguleikar í stöðunni

Kristinn H. Guðnason
Laugardaginn 25. apríl 2026 12:00

Ásdís Kristjánsdóttir Sjálfstæðisflokki, Jónas Már Torfason Samfylkingu, Einar Jóhannes Guðnason Miðflokki, María Ellen Steingrímsdóttir Viðreisn og Orri Vignir Hlöðversson Framóknarflokki.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ný könnun Maskínu fyrir DV fyrir bæjarstjórnarkosningarnar í Kópavogi sýna miklar sveiflur á fylginu. Ýmsir möguleikar koma til greina við myndun meirihluta.

Risastökk Samfylkingar

Sjálfstæðisflokkurinn heldur stöðu sinni sem stærsti flokkurinn í Kópavogi samkvæmt könnuninni en missir þó fylgi frá síðustu kosningum.

Flokkurinn mælist nú með 31,7 prósenta fylgi en hlaut 33,3 prósent í bæjarstjórnarkosningunum árið 2022. Sé þetta umreiknað í fjölda bæjarfulltrúa hefur þetta tap þó ekki áhrif því að Sjálfstæðisflokkurinn myndi halda sínum 4 fulltrúum. Alls eru 11 fulltrúar í bæjarstjórn Kópavogs og því þarf 6 til að mynda meirihluta.

Nærst stærsti flokkurinn er Samfylkingin, sem tekur risastökk frá kosningunum árið 2022 og þrefaldar fylgi sitt. Samfylkingin mælist nú með 24,5 prósenta fylgi í Kópavogi sem myndi duga fyrir 3 bæjarfulltrúum. Árið 2022 hlaut flokkurinn ekki nema 8,2 prósenta fylgi og 1 fulltrúa kjörinn.

Í þriðja sæti er Viðreisn sem einnig tekur gott stökk. Flokkurinn mælist með 14,9 prósenta fylgi sem myndi duga fyrir 2 bæjarfulltrúum. Viðreisn hlaut 10,7 prósent í síðustu kosningum og er með 1 bæjarfulltrúa.

Framsókn tapar stórt

Enn annar stökkvari er Miðflokkurinn sem mælist nú með slétt 11 prósent. Það myndi duga fyrir 1 fulltrúa kjörnum en í síðustu kosningum hlaut flokkurinn aðeins 2,6 prósent sem var langt frá því að duga fyrir bæjarfulltrúa.

Einhverjir hljóta að tapa fylgi og það hlutskipti virðist ætla að koma í hlut Framsóknarflokksins. Flokkurinn mælist nú með aðeins 8,7 prósent, sem myndi þó duga fyrir 1 bæjarfulltrúa. Árið 2022 vann flokkurinn góðan sigur, 15,2 prósent og er í dag með 2 bæjarfulltrúa.

Fylgi Vinstri grænna, sem bjóða nú fram með óháðum, helst nokkuð svipað frá síðustu kosningum samkvæmt þessari könnun. VG mælist með slétt 5 prósent en flokkurinn fékk 5,3 prósent síðast. Það dugar ekki fyrir bæjarfulltrúa.

Sósíalistaflokkurinn virðist heldur ekki ætla að hafa erindi sem erfiði samkvæmt könnuninni. Flokkurinn mælist með 4,1 prósenta fylgi sem dugar ekki fyrir bæjarfulltrúa.

Sjálfstæðisflokkurinn í góðri stöðu

Sé litið á niðurstöður könnunarinnar sést að Sjálfstæðisflokkurinn heldur nokkurn veginn fylgi sínu en Framsókn tapar. Ljóst er því að núverandi 6 manna meirihluti þessara tveggja flokka er fallinn.

Sjálfstæðisflokkurinn virðist eiga tvo möguleika til þess að mynda meirihluta til hægri. Það er annað hvort að mynda tveggja flokka meirihluta með Viðreisn. Eða þá að kippa Miðflokknum inn í núverandi meirihluta með Framsóknarflokknum til þess að bæta upp fyrir tap hins síðarnefnda.

Ysta vinstrið fellur niður dautt

Hafa ber í huga að Vinir Kópavogs bjóða ekki fram í ár, en það framboð er með 2 bæjarfulltrúa. Píratar ekki heldur en þeir hafa 1 fulltrúa í dag. Fylgi þessara flokka virðist fara að mestu leyti á Samfylkingu.

Meirihlutakostir Samfylkingar eru þrengri en Sjálfstæðisflokks því að rúmlega 9 prósent yst á vinstri vængnum falla niður dauð, það er hjá VG og Sósíalistum. Augljósasti kosturinn fyrir Samfylkingu til að mynda meirihluta er yfir miðjuna með Viðreisn og Framsóknarflokki.

Samfylking getur vitaskuld myndað tveggja flokka meirihluta með Sjálfstæðisflokki en það verður að teljast ólíklegt. Ekki er hægt að mynda meirihluta án Sjálfstæðisflokks eða Samfylkingar.

Könnunin var gerð 17. til 24. apríl. 644 tóku afstöðu til flokks.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Flest dauðaslysin á Norðurlöndum á Íslandi – Langflestir sem deyja í umferðinni eru karlmenn

Flest dauðaslysin á Norðurlöndum á Íslandi – Langflestir sem deyja í umferðinni eru karlmenn
Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Ófremdarástand í Eyjum – Beið fram á nótt eftir syni sínum sem þurfti að ferðast í 11 tíma með Herjólfi

Ófremdarástand í Eyjum – Beið fram á nótt eftir syni sínum sem þurfti að ferðast í 11 tíma með Herjólfi
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Róbert vill breyta Reykjavík: „Já, af hverju ekki?“ í staðinn fyrir „má þetta?“

Róbert vill breyta Reykjavík: „Já, af hverju ekki?“ í staðinn fyrir „má þetta?“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Donald Trump við fréttakonu 60 Mínútna: „Þú ert til skammar“ – Sjáðu myndbandið

Donald Trump við fréttakonu 60 Mínútna: „Þú ert til skammar“ – Sjáðu myndbandið