fbpx
Þriðjudagur 28.apríl 2026
Fréttir

Íbúafundur í Grindavík: Forsætisráðherra lét vita 2 dögum fyrr að hún kæmist ekki og þátttaka hennar auglýst án samráðs

Ragna Gestsdóttir
Fimmtudaginn 23. apríl 2026 08:15

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Íbúafundur var haldinn í Grindavík í gær kl. 16.30. Hafði Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra verið boðið á fundinn ásamt þingmönnum Reykjaness og Fasteignafélaginu Þórkötlu.  Kristrún mætti ekki á fundinn og enginn frá fasteignafélaginu. Vakti mynd af Kristrúnu í pizzapartýi í gærkvöldi mikla reiði meðal margra grindvíkinga. 

Sjá einnig: Grindvíkingar ævareiðir yfir pitsupartýi Valkyrjanna – „SKAMMIST YKKAR!!!“

Í yfirlýsingu aðstoðarmanns forsætisráðherra í framhaldi af fréttinni segir að boð á fundinn hafi borist á föstudag. Kristrún hafi strax á mánudag látið vita skipuleggjendur fundarins vita að hún kæmist ekki á fundinn, eigi að síður hafi fundurinn verið auglýstur með þátttöku hennar án samráðs. Á mánudag um leið og forsætisráðherra svaraði fundarboðinu bauðst hún til að funda með bæjarstjórn Grindavíkur síðar í vikunni og í næstu viku mun Kristrún funda með íbúasamtökunum Járngerði.

Yfirlýsingin hljóðar svo:

Íbúafundurinn í Grindavík var auglýstur með þátttöku forsætisráðherra án samráðs við hana. Hún komst ekki á fundinn í dag vegna persónulegra skuldbindinga á fundartímanum. Kvöldverður með formönnum ríkisstjórnarflokkanna tengist á engan hátt fjarveru ráðherra á fundinum, enda átti hann sér stað talsvert eftir að íbúafundinum lauk.
Skipuleggjendur íbúafundarins voru látnir vita strax á mánudag að forsætisráðherra kæmist því miður ekki. Í svari sínu til skipuleggjenda bauðst ráðherra til að funda með bæjarstjórn Grindavíkur síðar í vikunni. Þá mun ráðherra funda með íbúasamtökunum Járngerði í næstu viku.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Ása föst í hryllingshúsinu: „Fólk gengur stöðugt framhjá húsinu, tekur myndir og bendir“

Ása föst í hryllingshúsinu: „Fólk gengur stöðugt framhjá húsinu, tekur myndir og bendir“
Fréttir
Í gær

Slysið í Danmörku: Minnast Íslendingsins sem lést

Slysið í Danmörku: Minnast Íslendingsins sem lést
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Þriggja áratuga ráðgáta um svindlið á Helga Ólafssyni leyst – „Þetta hlaut alltaf að komast upp“

Þriggja áratuga ráðgáta um svindlið á Helga Ólafssyni leyst – „Þetta hlaut alltaf að komast upp“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Íslendingar sviknir um milljónir á Kanarí – Tryggingafélag varar við læknastofu

Íslendingar sviknir um milljónir á Kanarí – Tryggingafélag varar við læknastofu