fbpx
Miðvikudagur 29.apríl 2026
Fréttir

Ása segir frá augnablikinu þegar eiginmaðurinn játaði allt fyrir henni – „Hann virtist mjög taugaóstyrkur“

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 21. apríl 2026 09:10

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ása Guðbjörg Ellerup, fyrrverandi eiginkona raðmorðingjans Rex Heuermann, lýsir hrollvekjandi augnablikinu þegar eiginmaður hennar játaði að hafa myrt átta konur, þar af sjö á heimili þeirra hjóna, í nýju viðtali sem birt verður í heild sinni síðar í vikunni.

Viðtalið sem um ræðir birtist í lokaþætti heimildarþáttaraðar NBC Peacock, The Gilgo Beach Killer – House of Secrets, sem sýndur verður vestan hafs á fimmtudag. Fyrri þrír þættirnir voru sýndir í fyrrasumar en fjórði þátturinn bættist við eftir að Rex játaði morðin á sig fyrr í þessum mánuði.

Í viðtalinu lýsir Ása því þegar eiginmaður hennar felldi grímuna og játaði morðin. Ekki liggur fyrir hvenær þetta átakanlega uppgjör fór fram, en fram hefur komið að Ása hafi sótt um skilnað eftir 27 ára hjónaband þeirra nokkrum dögum eftir að hann var handtekinn í júlí 2023.

„Hann virtist mjög taugaóstyrkur – mjög, mjög taugaóstyrkur,“ sagði hún lögmanni sínum í brotinu úr væntanlegum þætti.

Þá kemur fram að í gegnum samtalið, sem fram fór augliti til auglitis, hafi hún ávarpaði hann  sem Herra Heuermann eins og til að skapa fjarlægð frá því að hann væri eiginmaður hennar.

„Ég sagði við hann: „Herra Heuermann, mér skilst að þú sért að játa þessi morð fyrir mér?“ segir hún. „Geturðu sagt mér hversu margar þessara kvenna þú drapst?” Hann sagði átta.“

Ása segir að Rex hafi tjáð henni að morðin hefðu verið framin þegar hún var ekki heima.

Lögmaður hennar, Bob Macedonio, spyr hana síðan hvort einhver fórnarlambanna hafi verið myrt á heimili þeirra í Massapequa Park á Long Island. „Hann sagði já, þær voru myrtar í herberginu hans niðri, allar nema ein,“ segir hún.

Þegar hún var spurð hvort hann hefði hikað við að svara spurningunum svaraði hún: „Nei – hann sagði mér einfaldlega svörin.“

Játning Rex var, að sögn, jafn köld og úthugsuð og glæpirnir sjálfir. Hann lýsti því með yfirveguðum hætti hvernig hann beið eftir að eiginkona hans færi að heiman áður en hann breytti fjölskylduheimilinu í vettvang morða.

Ása segir að hún hafi á einum tímapunkti neyðst til að loka á eigin tilfinningar til að geta hlustað á frásögn mannsins sem hún hafði búið með í nær þrjá áratugi. „Ég setti upp vegg,“ segir hún meðal annars en brotið úr þættinum má sjá hér að neðan:

 

View this post on Instagram

 

A post shared by Peacock (@peacock)

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Flest dauðaslysin á Norðurlöndum á Íslandi – Langflestir sem deyja í umferðinni eru karlmenn

Flest dauðaslysin á Norðurlöndum á Íslandi – Langflestir sem deyja í umferðinni eru karlmenn
Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Ófremdarástand í Eyjum – Beið fram á nótt eftir syni sínum sem þurfti að ferðast í 11 tíma með Herjólfi

Ófremdarástand í Eyjum – Beið fram á nótt eftir syni sínum sem þurfti að ferðast í 11 tíma með Herjólfi
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Róbert vill breyta Reykjavík: „Já, af hverju ekki?“ í staðinn fyrir „má þetta?“

Róbert vill breyta Reykjavík: „Já, af hverju ekki?“ í staðinn fyrir „má þetta?“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Donald Trump við fréttakonu 60 Mínútna: „Þú ert til skammar“ – Sjáðu myndbandið

Donald Trump við fréttakonu 60 Mínútna: „Þú ert til skammar“ – Sjáðu myndbandið