fbpx
Þriðjudagur 26.maí 2026
433Sport

Guðrún: „Við viljum vera þjóð sem er erfitt að koma og heimsækja“

Helgi Fannar Sigurðsson
Föstudaginn 10. apríl 2026 19:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ísland mætir Úkraínu á þriðjudag og Englandi fjórum dögum síðar. Fyrri leikurinn er sérlega mikilvægur en Stelpurnar okkar vonast til að geta strítt Englandi í þeim seinni.

Leikirnir eru liður í undankeppni HM. Ætla má að heimsmeistarar Spánar og Evrópumeistarar Englands verði í efstu tveimur sætunum en til mikils er að vinna með því að enda í því þriðja upp á framhaldið í umspili um sæti á mótinu.

Ísland hefur tapað báðum leikjum sínum hingað til, gegn Englandi og Spáni ytra.

„Í síðasta glugga vorum við mikið að verjast og minna með boltann. Þetta verða ólíkari leikir, við búumst við að vera meira með boltann á móti Úkraínu og stríða Englandi á heimavelli,“ sagði Guðrún Arnardóttir við 433.is nú í aðdraganda leikjanna.

video
play-sharp-fill

Hún var spurð að því hvort óhætt væri að segja að leikurinn við Úkraínu á heimavelli á þriðjudag væri sá mikilvægasti í undanriðilinum.

„Það er alveg hægt að segja það. Við ætlum okkur að vera topp þrír í riðlinum og það krefst þess að vinna leiki. Úkraína er frábært tækifæri til þess. Við ætlum okkur að vera sterkari á heimavelli, við viljum vera þjóð sem er erfitt að koma og heimsækja. Við ætlum okkur sigur á móti Úkraínu,“ sagði Guðrún.

Hún segir hægt að taka eitt og annað úr síðasta verkefni gegn Spáni og Englandi.

„Það voru erfiðir leikir. Við töluðum um að við gætum verið hugrakkari sóknarlega. Það eru svæði þar sem við getum sótt í, jafnvel á móti bestu liðunum. Við þurfum að hugsa út í það fyrir Englandsleikinn sérstaklega.“

Ítarlegra viðtal við Guðrúnu er í spilaranum hér ofar.

Meira
Guðrún ræðir opinskátt um tíðindin í vetur – „Ég var byrjuð að tapa gleðinni“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Luke Shaw í sögubækur Manchester United

Luke Shaw í sögubækur Manchester United
433Sport
Í gær

De Zerbi brattur eftir að hafa bjargað Spurs frá falli – Boðar það að kaupa hetju dagsins

De Zerbi brattur eftir að hafa bjargað Spurs frá falli – Boðar það að kaupa hetju dagsins
433Sport
Fyrir 2 dögum

Tómas svo gott sem bugaður vegna gengisins – „Var smá að vonast til þess að þeir myndu enda þjáningar mínar“

Tómas svo gott sem bugaður vegna gengisins – „Var smá að vonast til þess að þeir myndu enda þjáningar mínar“
433Sport
Fyrir 2 dögum

Björn sat furðu lostinn fyrir framan sjónvarpið á dögunum – „Það er svo fáránlegt, hvernig getur það gerst“

Björn sat furðu lostinn fyrir framan sjónvarpið á dögunum – „Það er svo fáránlegt, hvernig getur það gerst“
433Sport
Fyrir 2 dögum

Guardiola segir frá fallegum skilaboðum sem hann fékk frá Ferguson í gær

Guardiola segir frá fallegum skilaboðum sem hann fékk frá Ferguson í gær
433Sport
Fyrir 2 dögum

City setur allt í botn og vilja Enzo frá Chelsea

City setur allt í botn og vilja Enzo frá Chelsea
Hide picture