fbpx
Sunnudagur 24.maí 2026
433Sport

Tómas svo gott sem bugaður vegna gengisins – „Var smá að vonast til þess að þeir myndu enda þjáningar mínar“

433
Sunnudaginn 24. maí 2026 10:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Björn Þorfinnsson, fjölmiðlamaður og skákmeistari, og Tómas Steindórsson, útvarpsstjarna og körfuboltasérfræðingur, mættu til Helga Fannars Sigurðssonar í Íþróttavikuna.

Tómas er stuðningsmaður West Ham, sem á veika von um að bjarga sér frá falli úr ensku úrvalsdeildinni í lokaumferðinni.

Tap Totteham gegn Chelsea í síðustu umferð þýðir að West Ham getur bjargað sér ef liðið vinnur Leeds og Tottenham tapar gegn Everton.

video
play-sharp-fill

„Ég var smá að vonast til þess að þeir myndu enda þjáningar mínar og sækja bara stig, klára þetta,“ sagði Tómas um leik Chelsea og Tottenham og hló.

Björn benti á að Tottenham væru verri á heimavelli, en þeir taka einmitt á móti Everton þar í lokaumferðinni.

„Málið er að West Ham virðist ekki geta unnið leiki. Þeir eru búnir að fá leikina við Brentford og Newcastle. Sigur í öðrum hvorum hefði breytt stöðunni en við klúðruðum því,“ sagði Tómas hins vegar.

„Þetta Tottenham-lið hefur komið manni á óvart aftur og aftur með andleysi sínu, svo þeir eru engan veginn yfir það hafnir að tapa þarna,“ sagði Helgi þá.

Nánar í spilaranum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Arne Slot ræðir árangur Arsenal – Nefnir föst leikatriði og segir þá besta án boltans

Arne Slot ræðir árangur Arsenal – Nefnir föst leikatriði og segir þá besta án boltans
433Sport
Í gær

Setur pressu á eigendur Aston Villa – Villa taka skref í átt að því að berjast um deildina

Setur pressu á eigendur Aston Villa – Villa taka skref í átt að því að berjast um deildina
433Sport
Í gær

Fyrirliði Tottenham verður ekki á svæðinu þegar liðið berst fyrir lífi sínu á sunnudag

Fyrirliði Tottenham verður ekki á svæðinu þegar liðið berst fyrir lífi sínu á sunnudag
433Sport
Í gær

Guardiola ekki lengi að finna sér nýtt starf – Staðfest að hann muni starfa fyrir eigendur City Football Group

Guardiola ekki lengi að finna sér nýtt starf – Staðfest að hann muni starfa fyrir eigendur City Football Group
Hide picture