
Sigur Aston Villa á Manchester City í lokaumferð ensku úrvalsdeildarinnar á sunnudag þýðir að portúgalska stórliðið Sporting fer beint í deildarkeppni Meistaradeildarinnar á næstu leiktíð, án þess að þurfa að fara í umspil.
Villa vann City 2-1 á útivelli, en Ollie Watkins gerði bæði mörk gestanna. Með sigrinum tryggði liðið sér fjórða sæti deildarinnar.
Villa hafði þegar tryggt sér Meistaradeildarsæti með því að sigra Evrópudeildina en þar sem liðið hefði einnig tryggt sér sæti í keppninni í gegnum deildina fær Sporting sætið sem losnaði miðað við röðun UEFA.
Úrslitin höfðu einnig áhrif á Bournemouth, sem hafnaði í sjötta sæti og missti af Meistaradeildarsæti. Liverpool endaði í fimmta sæti en fer samt í Meistaradeildina þar sem England vann sér inn aukasæti þar með góðum árangri enskra liða í vetur.
Sjötta sætið, sem Bournemouth hafnaði í sem fyrr segir, hefði dugað inn í Meistaradeild ef Villa hefði endað þar. Er það vegna þess að þá hefði liðið bæði fengið Meistaradeildarsæti í gegnum Evrópudeildina og fengið aukasætið svokallaða.
Þar sem Villa vann City varð sjötta sætið þó aldrei að Meistaradeildarsæti.