
Joe Hart segir að ummæli Pep Guardiola á dögunum hafi komið sér á óvart, en Guardiola viðurkenndi þá að það væru mistök að hafa ekki gefið markverðinum tækifæri hjá Manchester City.
Guardiola lét Hart fara stuttu eftir að hann tók við City árið 2016. Spánverjinn var ekki sannfærður um að markvörðurinn væri nógur góður að spila boltanum út frá marki og fékk Claudio Bravo í hans stað.
Hart, sem vann ensku úrvalsdeildina tvívegis með City, lék aðeins einn leik undir stjórn Guardiola áður en hann var lánaður til Torino á Ítalíu.

„Ég hefði átt að gefa Joe tækifæri til að sanna sig. Ef það hefði ekki gengið þá hefðum við getað breytt til síðar,“ sagði Guardiola meðal annars um málið.
Hart var spurður út í ummælin fyrir lokaleik City á tímabilinu og sagðist ekki hafa búist við þeim.
„Þetta hafði sennilega meiri þýðingu fyrir mig en ég hefði haldið,“ sagði Hart og tók jafnframt fram að hann bæri engan kala til Guardiola þrátt fyrir hvernig hlutirnir enduðu.
„Ég taldi mig nógu góðan til að fá allavega tækifæri, en svona er fótboltinn bara. Lífið hélt áfram og ég átti frábæran feril eftir þetta líka.“
Hart sagðist einnig þakklátur fyrir tíma sinn hjá City og bætti við að hann hlakkaði til að taka í spaðann á Guardiola við tækifæri.