
Bruno Fernandes, fyrirliði Manchester United, er kominn með nóg af gagnrýni Roy Keane í sinn garð og hefur svarað goðsögninni.
Keane hélt því fram í hlaðvarpi að Fernandes hefði verið að hugsa meira um að slá stoðsendingamet í ensku úrvalsdeildinni en árangur liðsins.
Portúgalinn sló vissulega metið, sem var í eigu Thierry Henry og Kevin De Bruyne, í lokaumferð ensku úrvalsdeildarinnar um helgina en segir hann þessar fullyrðingar með öllu rangar.
„Ég hef alltaf virt Roy Keane fyrir það sem hann gerði fyrir félagið og ég tek gagnrýni almennt vel. En mér líkar ekki þegar fólk lýgur upp á mig,“ sagði Fernandes meðal annars.
Jafnframt sagði Fernandes að hann hafi óskað eftir því að fá símanúmer Keane frá fyrrum stjóra sínum hjá United, Ole Gunnar Solskjær, til að geta rætt við hann, en Keane hefur oft gagnrýnt Fernandes áður.