fbpx
Sunnudagur 07.júní 2026
Fréttir

Sænsk kona í vanda eftir handtöku í Leifsstöð

Jakob Snævar Ólafsson
Þriðjudaginn 24. mars 2026 17:30

Flugstöð Leifs Eiríkssonar.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kona sem er sænskur ríkisborgari hefur verið ákærð fyrir peningaþvætti með því að taka við illa fengnu fé en hún var með peningana meðferðis þegar hún var handtekin í Flugstöð Leifs Eiríkssonar.

Konan er á fimmtugsaldri og ákæran á hendur henni er birt í Lögbirtingablaðinu þar sem væntanlega hefur ekki tekist að birta konunni ákæruna.

Hún er ákærð fyrir peningaþvætti með því að hafa á tímabilinu 25. nóvember 2023 til 28. nóvember 2023 tekið við samtals 17.850 evrum (um 2,5 milljónir íslenskra króna) í reiðufé frá óþekktum aðila eða aðilum, en samkvæmt ákærunni gat henni ekki dulist að um væri að ræða ávinning af refsiverðum brotum.

Segir í ákærunni að konan hafi verið með reiðuféð í fórum sínum þegar hún var handtekin í Flugstöð Leifs Eiríkssonar þann 28. nóvember 2023 á leið til Parísar. Með háttsemi sinni hafi konan tekið á móti ávinningi af refsiverðum brotum, geymt ávinninginn, flutt og leynt ávinningnum og upplýsingum um uppruna, eðli, staðsetningu og ráðstöfun hans.

Þess er krafist að konan verði dæmd til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar. Þá er þess krafist að gerðar verði upptækar með dómi áðurnefndar 17.850 evrur sem lögregla hafi fundið og haldlagt og varðveittar séu sem innistæða á bankareikningi lögreglustjórans á Suðurnesjum auk vaxta og verðbóta af framangreindri fjárhæð frá 28. nóvember 2023 til greiðsludags.

Málið verður tekið fyrir við Héraðdóm Reykjaness í maí næstkomandi. Mæti konan ekki má búast við því að dæmt verði í málinu og fjarvera hennar metin sem ígildi játningar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Krefst svara um hvort mannréttindi séu brotin í almannatryggingakerfinu

Krefst svara um hvort mannréttindi séu brotin í almannatryggingakerfinu
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Málverkum stolið af sýningu í Bolholti um hábjartan dag

Málverkum stolið af sýningu í Bolholti um hábjartan dag
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Réttarhöld framundan í Edition-málinu – Sökuð um að hafa brugðið snöru um háls dóttur sinnar og stungið hana í hjartað

Réttarhöld framundan í Edition-málinu – Sökuð um að hafa brugðið snöru um háls dóttur sinnar og stungið hana í hjartað
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Davíð segir aðeins tímaspursmál þangað til annað ungmenni láti lífið: „Við þurfum að vakna og það núna“

Davíð segir aðeins tímaspursmál þangað til annað ungmenni láti lífið: „Við þurfum að vakna og það núna“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ósáttur við heilbrigðiseftirlitið, lögregluna og sýslumann – Hafi eyðilagt viðburð

Ósáttur við heilbrigðiseftirlitið, lögregluna og sýslumann – Hafi eyðilagt viðburð
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Vendingar í deilu Bríetar og Pálma – Frávísun vegna verulegra ágalla

Vendingar í deilu Bríetar og Pálma – Frávísun vegna verulegra ágalla
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Gagnrýnir gagnrýni Snorra – „Gerið betur en gervigreind kæra stjórnarandstaða. Lygarnar eru allar ykkar megin“

Gagnrýnir gagnrýni Snorra – „Gerið betur en gervigreind kæra stjórnarandstaða. Lygarnar eru allar ykkar megin“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Áslaug Arna fær stuðning og gagnrýni eftir umfjöllun um laun hennar – „Hjóla af hörku og hatri gegn konum“ – „Sjúga spena ríkisins“

Áslaug Arna fær stuðning og gagnrýni eftir umfjöllun um laun hennar – „Hjóla af hörku og hatri gegn konum“ – „Sjúga spena ríkisins“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Kvartaði vegna trúnaðarbrests í sveitarstjórn

Kvartaði vegna trúnaðarbrests í sveitarstjórn