

Nú fara fermingarbörnin á stjá, búin að æfa sig, sitja námskeið og undirbúa stóra daginn sinn. Fyrir marga foreldra tekur þó við annað verkefni sem getur reynst jafn krefjandi, að skipuleggja fermingarveisluna. Hún getur auðveldlega orðið kostnaðarsöm og yfirþyrmandi, en með skynsamlegri nálgun er vel hægt að halda fallega og eftirminnilega veislu án þess að setja fjárhag heimilisins úr skorðum.
Hildur Björk Scheving, markaðsstjóri Prís, sem er alltaf með augun á góðum prís hristi fram úr erminni nokkur góð sparnaðarráð fyrir fermingaveisluna og skellti í dæmi um fermingarveislu fyrir 30 manns með það að markmiði að halda kostnaði undir 20 þúsund krónum.

Þegar kemur að því að velja mat í sjálfa veisluna getur verið skynsamlegt að huga að því hversu mikinn tíma undirbúningurinn tekur og þá geta frosnir tilbúnir réttir sparað mikinn tíma. Útfærslan á þessari veislu hjá Hildi byggði á einföldum og aðgengilegum veitingum sem auðvelt er að bera fram. Viðmiðin voru sótt til ráðlegginga frá Leiðbeiningastöð heimilanna, sem gera ráð fyrir um 12–15 bitum á mann þegar boðið er upp á pinnamat í veislum.
„Það er auðvitað rosalega mikilvægt að enginn fari svangur heim, það hlýtur að vera stærsti ótti allra sem eru að skipuleggja svona veislur, þess vegna ákváðum við að miða við um 15 bita á mann. Í veislunni, sem við settum saman fyrir 30 manns, var boðið upp á einfaldan pinnamat og má þá nefna kjúklingaspjót, vorrúllur, grænmetis samosas, pakoras, grænmetis- og anda vorrúllur. Svo bætti ég við sætum bitum og keypti frosnar makkarónur og appelsínusúkkulaði fyllta kleinuhringjabolta, sem eru geggjaðir,“ segir Hildur og bætir við að það skemmi ekki fyrir að bæta við nokkrum jarðarberjum. „Ég fékk svo bara skrautið lánað hjá vinum og vandamönnum, því það er ótrúlegt hvað fólk á af alls konar dóti í skúffum og skápum sem hægt er að nýta áfram. Svo veislan var hin glæsilegasta og verðið fyrir matinn var rétt undir 20 þúsund.“


Hafðu veitingarnar einfaldar
Það þarf ekki flókið hlaðborð til að gleðja gesti. Með því að velja fáar en vel útfærðar veitingar sparast bæði tími og kostnaður.
Nýttu tilbúnar og aðgengilegar veitingar
Góðar tilbúnar veitingar geta einfaldað undirbúning verulega. Þær gera þér kleift að undirbúa fallega veislu án mikillar fyrirhafnar.
Skipuleggðu magnið fyrirfram
Með því að styðjast við einföld viðmið um magn er auðveldara að forðast bæði sóun og óþarfa kostnað.

Einfaldaðu skrautið
Lítið getur gert mikið. Kerti, blóm og stílhreint skraut skapar hlýlega stemningu án þess að kosta mikið.
Nýttu það sem til er
Fáðu lánað, endurnýtt og hugsaðu praktískt. Það getur sparað umtalsvert án þess að hafa áhrif á upplifun gesta. Það er bæði hagkvæmt og gott fyrir umhverfið að kaupa notað skraut og á Facebook eru tvær síður sem snúast bara um að selja og kaupa fermingaskraut en slíkar síður segir Hildur geti sparað háar fjáræðir. ,,Það er mikið fjör á endursölusíðum á Facebook á þessum árstíma en þessar tvær eru talsvert sóttar af foreldrum fermingabarna”:
Fermingar + aðrar veislur- Endurnýtanlegar skreytingar, gefins eða til sölu
Fermingar undirbúningur og hugmyndir
Sparaðu í blómakostnaði með því að búa til þínar eigin páskagreinar
„Það er vel hægt að halda glæsilega fermingaveislu án þess að fara á hausinn og án þess að slá af gæðum eða stemningu” segir Hildur glaðlega. Hún bendir til dæmis á að það sé sniðugt að fá sér labbitúr með garðklippurnar í hönd, velja nokkrar fallegar greinar sem hægt er að klippa niður í smærri vasa. Þegar heim er komið þarf að skera skáhallt neðan af greinunum, setja í vatn og á sólríkan stað. Því styttra sem er í veisluna því meiri sól þurfa greinarnar en flestar greinar ættu að vera farnar að taka við sér á um 2-5 vikum.
„Páskagreinar í litlum vösum er klassískt skraut á þessum tíma og kostar nákvæmlega ekkert nema heilsugöngu og smá fyrirhyggju. Svo má líka nota þurrkuð blóm eða fersk sem klippa má niður í litla vendi,” segir Hildur.
„Niðurstaðan er einföld. Fermingarveisla þarf hvorki að vera flókin né kostnaðarsöm til að vera falleg og eftirminnileg. Með smá skipulagi og einföldum veitingum er hægt að töfra fram veislu sem uppfyllir gæði og gleði,“ segir Hildur.
