fbpx
Þriðjudagur 17.mars 2026
Pressan

18 ára stúlka látin í alvarlegum heilahimnubólgufaraldri í Bretlandi

Pressan
Þriðjudaginn 17. mars 2026 13:30

Juliette Kenny lést á laugardag.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Heilbrigðisyfirvöld í Bretlandi reyna nú að koma í veg fyrir að heilahimnubólgufaraldur í Kent breiðist enn frekar út. Tvö ungmenni hafa látist síðustu daga og ellefu veikst alvarlega eftir að veikst af heilahimnubólgu B sem orsakast af bakteríusýkingu.

Reglubundnar bólusetningar gegn þessum stofni fyrir ungabörn og lítil börn hófust ekki fyrr en árið 2015 í Bretlandi sem þýðir að núverandi kynslóð unglinga og háskólanema er almennt ekki varin gegn honum.

Í frétt Mail Online kemur fram að sérfræðingar telji að útbreiðsla sjúkdómsins í skólum og við University of Kent í Canterbury kunni að hafa breiðst út vegna þess að ungmenni deildu rafrettum á skemmtistað.

Þegar hafa borist fréttir af grunuðu tilfelli í London þar sem 24 ára kona var lögð inn á sjúkrahús. Breskir fjölmiðlar greindu frá því í gær að hin 18 ára gamla Juliette Kenny væri önnur þeirra sem hefði látist.

Juliette lést á laugardag, umkringd fjölskyldu sinni, en hún var nemandi við Queen Elizabeth’s Grammar School í Faversham, þar sem skólastjórnendur og samnemendur hafa lýst mikilli sorg vegna fráfalls hennar.

Skólastjóri skólans sagði Juliette hafa verið ástsælan og virkan þátttakanda í skólasamfélaginu, þekktan fyrir jákvæðni, hlýju og góða nærveru.

Annar einstaklingur, 21 árs nemandi við University of Kent í Canterbury, er einnig látinn eftir smit og að minnsta kosti ellefu aðrir hafa veikst alvarlega.

Komið hefur fram að smitin kunni að tengjast viðburði sem haldinn var á skemmtistaðnum Club Chemistry í Canterbury í byrjun mars. Heilbrigðisyfirvöld hafa hvatt alla sem sóttu staðinn dagana 5.–7. mars til að leita sér sýklalyfjameðferðar í varúðarskyni.

Eigandi staðarins hefur sagt að yfir tvö þúsund manns hafi sótt viðburði þar þessa daga, en staðnum hefur verið lokað tímabundið meðan rannsókn stendur yfir.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Svona mikla orku notar gervigreind til að búa til 5 sekúndna myndband

Svona mikla orku notar gervigreind til að búa til 5 sekúndna myndband
Pressan
Fyrir 2 dögum

Ert þú óvenjulega vingjarnleg manneskja? – Þá býrðu líklega yfir þessum eiginleikum

Ert þú óvenjulega vingjarnleg manneskja? – Þá býrðu líklega yfir þessum eiginleikum
Pressan
Fyrir 2 dögum

Draga reykingar úr stressi? – Læknir aflífar mýtur um reykingar

Draga reykingar úr stressi? – Læknir aflífar mýtur um reykingar
Pressan
Fyrir 2 dögum

„Nýi Nostradamus“ með hrollvekjandi spádóm – Gerist nú í mars

„Nýi Nostradamus“ með hrollvekjandi spádóm – Gerist nú í mars