fbpx
Föstudagur 13.mars 2026
Fréttir

Skíðagöngufólki bjargað niður af Hofsjökli

Ritstjórn DV
Föstudaginn 13. mars 2026 15:53

Mynd frá björgunaraðgerðum á Hofsjökli í dag. Mynd: Landsbjörg.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Björgunarsveitarmenn komu fyrr í dag skíðagöngufólki á Hofsjökli, sem óskað hafði eftir aðstoð, til hjálpar og hefur hópurinn verið fluttur niður af jöklinum.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Slysavarnarfélaginu Landsbjörg.

Fram kemur að um þriggja manna hóp hafi verið að ræða. Fólkið hafi allt verið flutt í skjól og síðan búnaður þeirra sóttur sérstaklega.

Björgunarmenn á tveimur vélsleðum hafi komist að fólkinu rétt fyrir klukkan 13  í dag og þá einn  göngumaður verið fluttur niður af jökli. Hinir tveir hafi beðið áfram á jöklinum.

Sleðarnir hafi svo haldið til baka og sótt þá tvo sem eftir voru. Síðan hafi búnaður hópsins verið sóttur.

Fram kemur einnig að göngufólkið hafi verið orðið blautt og því verið kalt. Aðstæður á jöklinum hafi verið slæmar, erfitt færi og lítið skyggni.

Auk myndarinnar hér að ofan má sjá myndir af vettvangi hér fyrir neðan.

Mynd Landsbjörg.
Mynd: Landsbjörg
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Síminn og Sýn undirrita skilmálaskjal um kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar – Heildarvirðið metið á rúma 5 milljarða

Síminn og Sýn undirrita skilmálaskjal um kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar – Heildarvirðið metið á rúma 5 milljarða
Fréttir
Í gær

Ófrísk kona situr uppi með háan reikning

Ófrísk kona situr uppi með háan reikning