fbpx
Þriðjudagur 23.apríl 2024

Slysavarnafélagið Landsbjörg

Vélsleðaslys í nágrenni Húsavíkur

Vélsleðaslys í nágrenni Húsavíkur

Fréttir
Fyrir 3 vikum

Í tilkynningu frá Slysavarnafélaginu Landsbjörg kemur fram að rétt upp úr klukkan 14 í dag hafi björgunarsveitir á Húsavík og Aðaldal verið kallaðar út vegna vélsleðaslyss við Nykurtjörn við Húsavík, skammt frá skíðasvæðinu á Húsavík. Þar hafði einstaklingur á vélsleða slasast. Upphaflega hafi verið tilkynnt um að viðkomandi hefði lent í snjóflóði en snjóflóðahætta sé Lesa meira

Einn endaði í sjónum eftir að eldur kom upp í léttabát Herjólfs – Myndir

Einn endaði í sjónum eftir að eldur kom upp í léttabát Herjólfs – Myndir

Fréttir
15.02.2024

Í tilkynningu frá Slysavarnarfélaginu Landsbjörg kemur fram að einn maður úr þriggja manna áhöfn léttabáts Herjólfs hafi fallið útbyrðis þegar eldur varð laus í vélarrúmi bátsins fyrr í kvöld. Herjólfur var þá á leið úr Landeyjahöfn til Vestmannaeyja og var ferðin notuð til að æfa notkun léttabátsins. Björgunarskipið Þór hafi verið kallað út á hæsta Lesa meira

Nóg að gera hjá björgunarsveitum í ófærðinni

Nóg að gera hjá björgunarsveitum í ófærðinni

Fréttir
31.01.2024

Í tilkynningu frá Slysavarnarfélaginu Landsbjörg kemur fram að nóg hafi verið að gera í dag hjá björgunarsveitum vegna verkefna tengdum veðri og ófærð, einkum á Suðurnesjum og Suðurlandi en þó víðar. Verkefnum hafi fjölgað nokkuð þegar leið á daginn. Verkefni dagsins hafi byrjað á Suðurnesjum og uppi á Ásbrú, í Reykjanesbæ, hafi verið þó nokkuð Lesa meira

„Mér er ljúft og skylt að taka við þessum bolta“

„Mér er ljúft og skylt að taka við þessum bolta“

Fréttir
13.11.2023

Borghildur Fjóla Kristjánsdóttir er starfandi formaður slysavarnafélagsins Landsbjargar og verður það næstu vikurnar. Borghildur er í björgunarsveitinni Gerpi í Neskaupstað og Ársæli í Reykjavík. Hún hefur setið í stjórn Landsbjargar síðan 2019, þar af sem varaformaður síðustu þrjú ár. Í tilkynningu frá Landsbjörg er haft eftir Borghildi að henni sé ljúft og skylt að taka Lesa meira

Otti stígur til hliðar sem formaður Slysavarnafélagsins Landsbjargar

Otti stígur til hliðar sem formaður Slysavarnafélagsins Landsbjargar

Fréttir
13.11.2023

Otti Sigmarsson formaður Slysavarnafélagsins Landsbjargar hefur ákveðið að stíga tímabundið úr starfi sem formaður félagsins, Varaformaður tekur við skyldum formanns. Í færslu sem Otti birti fyrir stuttu og tilkynnti félagsmönnum um ákvörðunina segir hann það ekki sanngjarnt gagnvart félaginu, sjálfum sér eða fjölskyldu sinni að starfa áfram sem formaður við þær aðstæður sem Grindvíkingar standa Lesa meira

Mýslu bjargað af fjalli

Mýslu bjargað af fjalli

Fréttir
17.07.2023

Í tilkynningu frá Slysavarnafélaginu Landsbjörg segir frá ferð tíkarinnar Mýslu og eiganda hennar, sem ekki er nefndur til sögunnar, á Einstakafjalli sem er á milli Vöðlavíkur og Sandvíkur á Austurlandi. Tilgangur ferðarinnar var ljósmyndataka. Á meðan eigandinn var að taka myndir af náttúrufegurðinni hljóp Mýsla frá honum og hann sá hana hverfa niður fyrir klettabrún. Lesa meira

Björgunarsveitir aðstoðuðu fjölskyldu í sjálfheldu ofan Dalvíkur

Björgunarsveitir aðstoðuðu fjölskyldu í sjálfheldu ofan Dalvíkur

Fréttir
06.07.2023

Fjölskylda á ferðalagi um Norðurland lagði á Selhnjúk ofan Dalvíkur seinni partinn í dag, lenti í sjálfheldu og óskaði eftir aðstoð við að komast niður um klukkan 16:30 í dag. Fjölskyldufaðirinn hafði þá komist á topp Selhnjúks, en móðir og barn voru aðeins neðar í fjallinu og treystu sér ekki lengra. Björgunarsveitir frá Dalvík og Lesa meira

Þór kjörinn formaður Landsbjargar – „Félagsskapur sem getur flutt fjöll“

Þór kjörinn formaður Landsbjargar – „Félagsskapur sem getur flutt fjöll“

Fréttir
18.05.2019

Landsþing Slysavarnafélagsins Landsbjargar fer fram á Egilsstöðum núna um helgina og eru um 500 félagar staddir á þinginu. Þór Þorsteinsson sem verið hefur varaformaður félagsins frá árinu 2017 var í dag kjörinn formaður Landsbjargar, en Smári Sigurðsson sem gegnt hefur starfinu frá árinu 2015 gaf ekki kost á sér til endurkjörs. Þór er fyrrum formaður Lesa meira

Guðni Th. keypti græðlinga og flugelda

Guðni Th. keypti græðlinga og flugelda

Fókus
30.12.2018

Flugeldasala stendur nú sem hæst enda verður árið 2018 kvatt eftir rúman sólarhring. Á meðal þeirra sem fjárfestu í flugeldum í dag er Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands, en hann kom við hjá Hjálparsveit skáta í Garðabæ. Guðni Th. studdi ekki aðeins við Slysavarnafélagið Landsbjörgu með kaupum á flugeldum, hann keypti einnig Skjótum rótum, sem Lesa meira

„Björgunarsveitirnar ekki sérstakir varðhundar flugelda“

„Björgunarsveitirnar ekki sérstakir varðhundar flugelda“

Eyjan
29.12.2018

„Afrakstur af flugeldasölu björgunarsveita er ekki „handa björgunarsveitum“ heldur til þess að hægt verði að halda uppi viðunandi björgunar- og almannavarnaviðbragði í landinu,“ segir Smári Sigurðsson, formaður slysavarnafélagsins Landsbjargar í áramótakveðju sinni. Það styttist í áramót og líkt og mörg fyrri ár er umræðan um flugelda, flugeldasölu, áhrif þeirra á umhverfið og mögulegt bann þeirra Lesa meira

Mest lesið

Ekki missa af