fbpx
Laugardagur 02.maí 2026
433Sport

Aron Einar farin aftur til Katar en fjölskyldan bíður á Íslandi á meðan ástandið er óstöðugt

Hörður Snævar Jónsson
Fimmtudaginn 12. mars 2026 11:30

Aron Einar og Kristbjörg. Mynd/Instagram

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Aron Einar Gunnarsson leikmaður Al-Gharafa í Katar er mættur aftur til landsins eftir að hafa komið til Íslands ásamt fjölskyldu sinni. Fjölskyldan flúði þær árásir sem Katar og önnur lönd hafa mátt þola frá Íran.

Íranir byrjuðu að skjóta á nágranna ríki sín eftir að Bandaríkin og Ísrael hófu að skjóta á landið. Fjöldinn allur af Íslendingum sem býr í Mið-Austurlöndum hefur flúið vettvang.

Aron og eiginkona hans, Kristbjörg Jónasdóttir ásamt börnum þeirra, komu til landsins fyrir helgi en Aron stoppaði stutt við og fór aftur til Katar þar sem Al-Gharafa á leik í dag.

Aron Einar Gunnarsson. Mynd DV/KSJ

Kristbjörg segir frá þessu á Instagram síðu sinni en fjölskyldan hefur verið búsett í Katar frá árinu 2019 og unað sér vel, Kristbjörg segir fjölskylduna fara aftur til Katar þegar ástandið hefur lagast.

Aron sem fagnar 37 ára afmæli sínu á síðasta ári hefur verið í atvinnumennsku í tuttugu ár og spilað í Hollandi, á Englandi og nú í Katar síðustu sjö árin.

Hann var fyrirliði íslenska landsliðsins um langt skeið og leiddi liðið á Evrópumótið árið 2016 og Heimsmeistaramótið árið 2018.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Jóhann ómyrkur í máli – „Mér finnst þetta bara líta virkilega illa út“

Jóhann ómyrkur í máli – „Mér finnst þetta bara líta virkilega illa út“
433Sport
Í gær

Stefnir í harða baráttu á milli United og Arsenal

Stefnir í harða baráttu á milli United og Arsenal
433Sport
Í gær

Telur að Manchester United geti unnið deildina á næstu árum

Telur að Manchester United geti unnið deildina á næstu árum
433Sport
Í gær

Ein fegursta kona heims slasaði sig – „Einn versti sársauki sem ég hef fundið“

Ein fegursta kona heims slasaði sig – „Einn versti sársauki sem ég hef fundið“