fbpx
Miðvikudagur 11.mars 2026
Eyjan

Dómsmálaráðherra hjá Sameinuðu þjóðunum: Jöfn skipting fæðingarorlofs styrkir stöðu kvenna á vinnumarkaði

Eyjan
Miðvikudaginn 11. mars 2026 11:30

Mynf/Agaton Strom/norden.org

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kynjajafnrétti fær fjölskyldur til að dafna (e. Gender Equality Makes Families Thrive) var yfirskrift pallborðsumræðna norrænna jafnréttisráðherra á sjötugasta fundi Kvennanefndar Sameinuðu þjóðanna (CSW70) í vikunni.

Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra og ráðherra jafnréttismála, tók þátt í umræðunum fyrir Íslands hönd. Hún sagði meðal annars að mikilvægt væri að halda sögunni á lofti til þess að ungt fólk og komandi kynslóðir áttuðu sig á því að árangur Norðurlandanna í jafnréttismálum væri síður en svo sjálfsagður. Hún lagði áherslu á að Ísland hefði náð miklum árangri á fjölmörgum sviðum vegna aðgerða í jafnréttismálum.

„Jafnréttismál snúast ekki bara um jafnrétti. Jafnrétti hefur ekki aðeins áhrif á stöðu einstaklinga heldur bætir það hag fjölskyldna og stuðlar að efnahagslegri velmegun samfélaga. Þegar öllu er á botninn hvolft er jafnrétti efnahagsmál,“ sagði ráðherra.

Sjálfstæður réttur til fæðingarorlofs mikilvæg aðgerð

Í máli sínu lagði hún sérstaka áherslu á reynslu Íslands af sjálfstæðum rétti beggja foreldra til fæðingarorlofs. Samkvæmt lögum er hvoru foreldri tryggður sjálfstæður réttur til fæðingarorlofs í allt að sex mánaða, þar sem aðeins sex vikur eru framseljanlegar milli foreldra.

„Sjálfstæður réttur beggja foreldra til fæðingarorlofs hefur reynst gríðarlega áhrifarík aðgerð. Ef við viljum raunverulegt jafnrétti á vinnumarkaði verðum við að tryggja að ábyrgðin á fyrstu mánuðum barns sé sameiginleg. Þegar feður taka stærri þátt í fæðingarorlofi verður fjarvera foreldra frá vinnumarkaði jafnari og dregur úr þeirri hættu að konur sitji eftir í starfsþróun og tekjum.“

Auk Þorbjargar tóku þátt í umræðunum Lubna Jaffery, menningar- og jafnréttisráðherra Noregs, Sanni Grahn-Laasonen, velferðarráðherra Finnlands, Nina Larsson, jafnréttisráðherra Svíþjóðar, og Kira Appel, yfirmaður alþjóðamála í danska umhverfis- og jafnréttisráðuneytinu. Þær voru sammála um að reynsla Norðurlandanna sýndi skýrt að aðgerðir í þágu jafnréttis skiluðu ávinningi fyrir fjölskyldur og samfélög.

Í umræðunum kom einnig fram að stjórnvöld þyrftu að takast á við áskoranir á sviði upplýsingaóreiðu, gervigreindar, útbreiðslu íhaldssamrar hugmyndafræði, hatursorðræðu og áreitni á netmiðlum. Bregðast þyrfti við útbreiðslu íhaldssamrar hugmyndafræði meðal ungs fólks, leggja áherslu á vítt samráð við stefnumótun og fá karlmenn í ríkari mæli til liðs við jafnréttisbaráttuna.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Jóhann Páll Jóhannsson á þingi Samtaka iðnaðarins: Afnemum neitunarvald landeigenda – einföldum regluverkið

Jóhann Páll Jóhannsson á þingi Samtaka iðnaðarins: Afnemum neitunarvald landeigenda – einföldum regluverkið
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Sigmundur Ernir skrifar: Miðaldir eru að baki á Íslandi

Sigmundur Ernir skrifar: Miðaldir eru að baki á Íslandi
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Allt sem þú þarft að vita um ESB-þjóðaratkvæðagreiðsluna

Allt sem þú þarft að vita um ESB-þjóðaratkvæðagreiðsluna
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Katrín Káradóttir skrifar: Soroptimistar taka þátt í alþjóðlegum baráttudegi kvenna því það skiptir máli

Katrín Káradóttir skrifar: Soroptimistar taka þátt í alþjóðlegum baráttudegi kvenna því það skiptir máli
Eyjan
Fyrir 1 viku

Vísar staðhæfingu Dags um Davíð á bug – „Ég kannast ekki við þetta“

Vísar staðhæfingu Dags um Davíð á bug – „Ég kannast ekki við þetta“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Willum Þór Þórsson: Ánægður með skýran málflutning Lilju – má samt ekki missa mig í pólitík

Willum Þór Þórsson: Ánægður með skýran málflutning Lilju – má samt ekki missa mig í pólitík