fbpx
Mánudagur 09.mars 2026
Eyjan

Kristinn bæjarstjóraefni Samfylkingar, Viðreisnar og óháðra á Seltjarnarnesi

Eyjan
Sunnudaginn 8. mars 2026 15:05

Fimm efstu frambjoðendurnir á listanum

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í dag var listi Samfylkingar, Viðreisnar og óháðra frambjóðenda kynntur í Golfskálanum á Seltjarnarnesi. Framboðið sameinar fólk með fjölbreyttan bakgrunn í rekstri, stjórnsýslu, nýsköpun, skipulagsmálum og samfélagsstarfi.

Í efstu fimm sætunum eru:

  1. Kristinn Ólafsson, stjórnandi og ráðgjafi
  2. Sigurþóra Bergsdóttir, varaþingmaður
  3. Helgi Steinar Helgason, arkitekt
  4. Auður Halla Rögnvaldsdóttir, háskólanemi
  5. Egill Ö. Hermannsson, sérfræðingur hjá Fjársýslunni

Frambjóðendur segja að Seltjarnarnes hafi alla burði til að vera eitt öflugasta og eftirsóknarverðasta sveitarfélag landsins. Á sama tíma sé ljóst að áskoranir hafi safnast upp í fjármálum og innviðum bæjarins á undanförnum árum.

Markmið listans er að taka á þessum verkefnum af ábyrgð, styrkja þjónustu við íbúa og byggja upp lifandi samfélag á Nesinu þar sem mannlíf, skólar og þjónusta standa undir væntingum bæjarbúa.

Frambjóðendur leggja sérstaka áherslu á ábyrga fjármálastjórn, sterka skóla og þjónustu við fjölskyldur, auk þess að efla samfélagslíf og bæjarbrag á Seltjarnarnesi.

„Við erum með sterkan hóp fólks sem vill leggja sitt af mörkum til að gera góðan bæ enn betri. Seltjarnarnes á að vera bæjarfélag þar sem þjónusta, skólar og bæjarbragur standa undir væntingum íbúa. Við viljum taka ábyrgð á því að snúa rekstrinum við og byggja upp bæinn aftur með skýrri sýn og góðu samstarfi við íbúa. Markmið okkar er að taka á þeim verkefnum sem blasa við og byggja upp sterkt og lifandi samfélag á Nesinu,“ segir Kristinn Ólafsson, oddviti listans.

Frambjóðendur lista Samfylkingar, Viðreisnaro g óháðra

  1. Kristinn Ólafsson, stjórnandi og ráðgjafi
  2. Sigurþóra Bergsdóttir, varaþingmaður
  3. Helgi Steinar Helgason, arkitekt
  4. Auður Halla Rögnvaldsdóttir, háskólanemi
  5. Egill Ö. Hermannsson, sérfræðingur hjá Fjársýslunni
  6. Áslaug Eva Björnsdóttir, ráðgjafi í stafrænni umbreytingu
  7. Kristín Edda Óskarsdóttir, ráðgjafi og frumkvöðull
  8. Garðar Svavar Gíslason, viðskiptafræðingur
  9. Halla Helgadóttir, sálfræðingur
  10. María Stefánsdóttir, umhverfisverkfræðingur
  11. Björg Þorsteinsdóttir, kennari við Valhúsaskóla
  12. Skúli Eiríksson, kerfisfræðingur
  13. Karen María Jónsdóttir, stafrænn leiðtogi
  14. Guðmundur Ari Sigurjónsson, alþingismaður

Kynning á efstu sjö frambjóðendum

Kristinn Ólafsson

Kristinn er reyndur stjórnandi með áratuga reynslu af rekstri, mannauðsmálum og markaðsstarfi. Hann hefur starfað bæði hjá félagasamtökum og fyrirtækjum og tekið virkan þátt í samfélags- og sjálfboðastarfi á Seltjarnarnesi.

Sigurþóra Bergsdóttir

Sigurþóra er varaþingmaður með meistaragráðu í félags- og vinnusálfræði. Hún hefur stýrt fjölbreyttum þjónustuverkefnum hjá ríki, borg og einkageira og setið í bæjarstjórn Seltjarnarness frá 2018.

Helgi Steinar Helgason

Helgi Steinar er arkitekt með meistaragráðu frá Arkitektaskólanum í Árósum. Hann hefur starfað við arkitektúr og skipulagsmál, rekið arkitektastofur og gegnt trúnaðarstörfum innan fagstéttar og menningarlífs.

Auður Halla Rögnvaldsdóttir

Auður Halla er nemi í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands og leiðbeinandi í Selinu. Hún hefur verið virk í ungliðahreyfingum og leggur áherslu á að málefni ungs fólks og framtíð fjölskyldna á Nesinu fái sterka rödd.

Egill Ö. Hermannsson

Egill er sérfræðingur á mannauðssviði Fjársýslunnar með menntun í stjórnmálafræði og opinberri stjórnsýslu. Hann hefur starfað bæði hjá ríki og sveitarfélögum og gegnt trúnaðarstörfum í ungmennahreyfingum.

Áslaug Eva Björnsdóttir

Áslaug Eva er ráðgjafi í stafrænni umbreytingu og teymisþróun með alþjóðlega reynslu úr tækni- og hugbúnaðargeiranum. Hún hefur starfað við stafræna þróun hjá Reykjavíkurborg og alþjóðlegum fyrirtækjum.

Kristín Edda Óskarsdóttir

Kristín Edda er ráðgjafi og frumkvöðull með meistaragráðu í félagslegri sálfræði. Hún hefur starfað við ráðgjöf og rekstur, tekið virkan þátt í foreldra- og skólastarfi og leggur áherslu á skóla og tómstundir barna.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Nína Richter skrifar: Leyfist Laufey að vera á dós?

Nína Richter skrifar: Leyfist Laufey að vera á dós?
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Framboðslisti Viðreisnar í Reykjavík

Framboðslisti Viðreisnar í Reykjavík
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Vísar staðhæfingu Dags um Davíð á bug – „Ég kannast ekki við þetta“

Vísar staðhæfingu Dags um Davíð á bug – „Ég kannast ekki við þetta“
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Willum Þór Þórsson: Ánægður með skýran málflutning Lilju – má samt ekki missa mig í pólitík

Willum Þór Þórsson: Ánægður með skýran málflutning Lilju – má samt ekki missa mig í pólitík
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Vopnaður friður – Var rétta fólkinu fórnað? Gamalt vín á nýjum belgjum

Orðið á götunni: Vopnaður friður – Var rétta fólkinu fórnað? Gamalt vín á nýjum belgjum
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Jón Gnarr skrifar: Lestraráhyggjur

Jón Gnarr skrifar: Lestraráhyggjur