fbpx
Laugardagur 02.maí 2026
Pressan

Bandaríski draumurinn hefur snúist við – Nú vilja margir yfirgefa Bandaríkin

Pressan
Sunnudaginn 15. mars 2026 19:30

Sumir þurfa að reiða fram háa tryggingu áður en farið er til Bandaríkjanna.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í 250 ár hafa Bandaríkin verið landið sem fólk fór til og vildi fara til í von um að geta látið ameríska drauminn rætast. En nú hefur draumurinn snúist við því nú vill fimmti hver Bandaríkjamaður yfirgefa landið og flestir vilja komast til Evrópu.

The Wall Street Journal skýrir frá þessu og segir að á síðasta ári hafi fleiri flutt frá Bandaríkjunum en til þeirra. Þetta er byggt á tölum frá Brookings Institute.

Trump-stjórnin hefur skýrt þessa þróun með því að þetta sanni að brottvísanir innflytjenda beri árangur. En undir þessari pólitísku siguryfirlýsingu leynist óþægilegur sannleikur – Það eru ekki bara innflytjendur sem yfirgefa Bandaríkin, það gera innfæddir Bandaríkjamenn í stórum stíl. Svo margir að brottflutningur í þessum stíl hefur ekki átt sér stað síðan í kreppunni miklu á fjórða áratugnum. Þá héldu Bandaríkjamenn til Sovétríkjanna í von um vinnu og réttlæti.

En í dag liggur straumurinn til Evrópu og það bætist sífellt við.

Á síðasta áratug hefur fjöldi bandarískra ríkisborgara á Spáni og í Hollandi tvöfaldast. Í Portúgal er aukning enn meiri eða 500% síðan heimsfaraldur kórónuveirunnar skall á.

Rúmlega 31.000 Bandaríkjamenn fengu írskan ríkisborgararétt 2024. 6.600 Bandaríkjamenn sóttu um ríkisborgararétt í Bretlandi á síðasta ári og hafa aldrei verið fleiri.

Nú hafa að minnsta kosti 1,5 milljónir Bandaríkjamanna varanlega búsetu í Evrópu og  eru námsmenn, afkomendur innflytjenda eða fólk sem er mánuðum saman í álfunni með vegabréfsáritun sem ferðamenn ekki taldir með.

Niðurstöður kannana Gallup sýna að fimmti hver Bandaríkjamaður vill gjarnan flytja alfarinn úr landi. 2008 var hlutfallið einn af hverjum tíu. Hjá konum á aldrinum 15 til 44 ára er hlutfallið 40%.

Millistéttin flytur

Bandaríkin laða enn auðmenn til sín. Á síðasta ári fluttu 7.500 milljónamæringar þangað en Evrópa missir ofurríka fólkið.

En straumurinn, sem liggur í hina áttina, er að mestu borinn uppi af millistéttinni. Arkitektar, ráðgjafar, fráskildar konur, lífeyrisþegar og barnafjölskyldur eru meðal þeirra sem flytja.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fundarhöld um helgina
Pressan
Fyrir 2 dögum

Á yfir höfði sér þunga refsingu fyrir að sleikja rör

Á yfir höfði sér þunga refsingu fyrir að sleikja rör
Pressan
Fyrir 2 dögum

Óhugnanleg ráðgáta leyst – Lík fannst sundurbútað í ferðatöskum árið 1998

Óhugnanleg ráðgáta leyst – Lík fannst sundurbútað í ferðatöskum árið 1998
Pressan
Fyrir 3 dögum

Varalesari varpar ljósi á viðvörun Trumps til Karls – „Við ræðum þetta síðar“

Varalesari varpar ljósi á viðvörun Trumps til Karls – „Við ræðum þetta síðar“
Pressan
Fyrir 3 dögum

Konan sem giftist föður sínum rýfur þögnina um stöðu sína í dag

Konan sem giftist föður sínum rýfur þögnina um stöðu sína í dag
Pressan
Fyrir 4 dögum

Dularfull dauðsföll vísindamanna ekki bara bundin við Bandaríkin

Dularfull dauðsföll vísindamanna ekki bara bundin við Bandaríkin
Pressan
Fyrir 4 dögum

Foreldrar sakaðir um gáleysi eftir að sonur þeirra kastaði styttu fram af svölum – þrítug kona lést

Foreldrar sakaðir um gáleysi eftir að sonur þeirra kastaði styttu fram af svölum – þrítug kona lést