fbpx
Föstudagur 13.mars 2026
433Sport

Sviptur ökuréttindum og segist ætla að bæta ráð sitt

Hörður Snævar Jónsson
Fimmtudaginn 5. mars 2026 13:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Oliver Glasner, knattspyrnustjóri Crystal Palace, hefur verið sviptur ökuréttindum í sex mánuði eftir hraðakstur í London.

Hinn 51 árs gamli Austurríkismaður var tekinn á myndavél þegar hann ók BMW-bíl sínum á 29 mílna hraða á vegarkafla þar sem hámarkshraði er 20 m/klst. Atvikið átti sér stað á Old Kent Road í Bermondsey í suðurhluta London að morgni til 15. júlí síðastliðinn.

Brotið átti sér stað aðeins tveimur mánuðum eftir að Glasner stýrði Crystal Palace til sigurs í enska bikarnum, sem var eitt stærsta afrek félagsins á síðari árum. Nokkrum dögum áður hafði félagið þó fengið slæmar fréttir þegar sæti þess í Evrópudeildinni var lækkað niður í Sambandsdeild Evrópu.

Glasner játaði brotið fyrir dómstól í Willesden og reyndi ekki að komast hjá því að missa ökuréttindin. Í bréfi til dómstólsins sagðist hann taka fulla ábyrgð á gjörðum sínum.

„Ég tek fulla ábyrgð á gjörðum mínum og skil alvarleika málsins. Ég hef gert ráðstafanir til að tryggja að þetta gerist ekki aftur,“ skrifaði Glasner.

Auk sex mánaða ökuleyfissviptingar þarf Glasner einnig að greiða sekt vegna brotsins. Málið hefur vakið athygli í enskum fjölmiðlum þar sem Glasner er einn af þekktari knattspyrnustjórum úrvalsdeildarinnar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Vill fá svör um framtíð sína vegna áhuga frá Madríd

Vill fá svör um framtíð sína vegna áhuga frá Madríd
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Vill burt frá Manchester United í sumar

Vill burt frá Manchester United í sumar
433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Segir Djuric hafa hafnað Blikum og fari í KA – Sagður kosta 18 milljónir og fær betur borgað á Akureyri

Segir Djuric hafa hafnað Blikum og fari í KA – Sagður kosta 18 milljónir og fær betur borgað á Akureyri
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Kemst yfir sambandsslitin – Byrjaður með Duda sem á frægan pabba

Kemst yfir sambandsslitin – Byrjaður með Duda sem á frægan pabba
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Ronaldo fer í sérstaka meðferð á Spáni – Meiðslin alvarlegri en talið var í fyrstu

Ronaldo fer í sérstaka meðferð á Spáni – Meiðslin alvarlegri en talið var í fyrstu
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Látin eftir tveggja ára baráttu við krabbamein – Huggun í því að þjáning hennar er á enda

Látin eftir tveggja ára baráttu við krabbamein – Huggun í því að þjáning hennar er á enda