fbpx
Laugardagur 02.maí 2026
433Sport

Chelsea slátraði Aston Villa – Arsenal færist nær titlinum eftir vonbrigði hjá City

Hörður Snævar Jónsson
Miðvikudaginn 4. mars 2026 21:35

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fjórum leikjum er lokið í ensku úrvalsdeildinni í kvöld en Chelsea lék sér að Aston Villa á útivelli. Douglas Luiz kom heimamönnum yfir á annari mínútur.

Joao Pedro svaraði fyrir gestina með tveimur mörkum í fyrri hálfleik og staðan 1-2 í hálfleik.

Cole Palmer kom Chelsea í 1-3 í síðari hálfleik áður en Pedro bætti við fjórða marki Chelsea og fullkomnaði þrennu sína. Chelsea fer upp í fimmta sæti deildarinnar og fer yfir Liverpool á markatölu.

Á sama tíma vann Arsenal 0-1 sigur á Brighton þar sem Bukayo Saka skoraði eina mark leiksins. Topplið Arsenal ógnaði marki gestana ekki mikið en Brighton var í sömu vandræðum, þeir sköpuðu sér lítið.

Forskot Arsenal á toppi deildarinnar eru sjö stig eftir kvöldið því Manchester City mistókst að klára Nottingham Forest á heimavelli. Leikurinn endaði 2-2 en City komst í tvígang yfir í leiknum, Antoine Semenyo og Rodri skoruðu mörk City.

City á leik til góða á Arsenal en ljóst er að lærisveinar Mikel Arteta eru í frábæri stöðu.

Á sama tíma vann West Ham öflugan sigur á Fulham þar sem Crysencio Summerville skoraði eina mark leiksins. West Ham er áfram í fallsæti með 28 stig, sama fjölda og Nottingham Forest og aðeins stigi á eftir Tottenham.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Fundarhöld um helgina

Fundarhöld um helgina
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Þetta er það sem stjörnurnar virðast spá mest í þegar þær koma til Íslands – „Maður er bara vanur því“

Þetta er það sem stjörnurnar virðast spá mest í þegar þær koma til Íslands – „Maður er bara vanur því“
433Sport
Í gær

Stefnir í harða baráttu á milli United og Arsenal

Stefnir í harða baráttu á milli United og Arsenal
433Sport
Í gær

Vill þjálfa aftur á Englandi

Vill þjálfa aftur á Englandi