fbpx
Laugardagur 02.maí 2026
433Sport

Leikmaður United fær sekt, bann og þarf að sækja námskeið – Kallaði leikmann hommastrák

Helgi Fannar Sigurðsson
Miðvikudaginn 4. mars 2026 13:30

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Jack Fletcher, miðjumaður Manchester United, hefur beðist afsökunar eftir að hafa fengið sex leikja bann fyrir að láta niðrandi ummæli um samkynhneigða falla í leik.

Atvikið átti sér stað í 5-2 tapi gegn Barnsley í bikarkeppni neðri deilda í október. Fletcher, sem er 18 ára og sonur fyrrum leikmanns United, Darren Fletcher, var rekinn af velli á 62. mínútu. Síðar kom í ljós að hann kallaði andstæðing „hommastrák“.

„Ég biðst innilega afsökunar á þessu móðgandi orðavali í hita leiksins,“ sagði Fletcher og bætti við að ummælin endurspegluðu ekki gildi sín.

Enska knattspyrnusambandið sektaði hann um 1500 pund og skipaði honum að sækja fræðslunámskeið. United segir félagið vinna með leikmanninum í fræðslu um skaðsemi mismununar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Fundarhöld um helgina

Fundarhöld um helgina
433Sport
Í gær

Þetta er það sem stjörnurnar virðast spá mest í þegar þær koma til Íslands – „Maður er bara vanur því“

Þetta er það sem stjörnurnar virðast spá mest í þegar þær koma til Íslands – „Maður er bara vanur því“
433Sport
Í gær

Stefnir í harða baráttu á milli United og Arsenal

Stefnir í harða baráttu á milli United og Arsenal
433Sport
Í gær

Vill þjálfa aftur á Englandi

Vill þjálfa aftur á Englandi